
Will Smith: Af hverju ég löðrungaði fréttamanninn
2. júní 2012 › 23:03Leikarinn Will Smith mætti í viðtal hjá spjallkónginum David Letterman á dögunum og töluðu þeir saman um atvikið sem átti sér stað í maí, þegar Smith gaf fréttamanni utan undir á frumsýningunni á Men In Black 3. Smith reiddist þegar fréttamaðurinn reyndi að kyssa hann.
Í viðtalinu segir Smith: „Hann sagði: „Ég er stærsti aðdáandi þinn, má ég faðma þig? Svo að ég faðma þennan spaugara og hann reynir að halla sér nær til að kyssa mig! Það var bara óþægilegt, Dave,“
Fréttamaðurinn, sem er úkraínskur, hefur það sérkenni að hann kyssir alltaf stjörnur sem hann tekur viðtal við. Spaugið féll greinilega ekki vel í kramið hjá Smith, sem sagði eftir að hafa slegið til mannsins: „Hann var heppinn að ég hafi ekki kýlt hann kaldan.“
Athugasemdir
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
