
Bændurnir bjarga Hrafnhildi
19. júní 2012 › 10:30Hrafnhildur Hafsteinsdóttir segir ómetanlegt að búa í litlu samfélagi eins og Kjósinni þar sem allir hjálpi öllum. Þetta segir hún í viðtali í Lífinu, fylgiriti Fréttablaðsins, en þar ræðir Hrafnhildur meðal annars nöfn dætra sinna, móðurhlutverkið og eiginmanninn, Bubba Morthens, í „kvennaríkinu í Kjósinni“.
„Þegar eitthvað ber út af af eins og t.d. í vetur þegar allt var ófært út af snjó, þá voru bændurnir ekki lengi að mæta á traktorum og moka mann út. Þegar eitthvað kemur upp finnur maður hve dýrmætt er að búa í litlu samfélagi þar sem velvilji er mikill milli fólks,“ segir hún.
Hrafnhildur segir það þó líka hafa sína ókosti að búa svo langt frá bænum þó kostirnir séu mun stærri. Bubbi kom inn á þann ókost sjálfur á landsfundi Orkuveitunnar fyrir helgi en hann segir þau hjónin eyða hátt í 200.000 krónum í bensín á mánuði. Bubbi talaði um þá miklu þróun sem hafði orðið í framleiðslu rafbíla og hvatti til þess að Ísland yrði fyrsta landið til að rafvæða bílaflota sinn.
