
Bjartmar: „Aldrei án hennar“
17. júní 2012 › 09:00Bjartmar Guðlaugsson stendur á tímamótum, sextugur. Hann segir aldurinn kalla á uppgjör og stefnir á að koma því til skila á næstu plötu sinni. Rokkarinn og ljóðskáldið segist eiga konu sinni og dætrum allt að þakka. Án þeirra hefði hann ekki komist í gegnum erfiðustu kafla lífs síns. Ásgeir Jónsson ræddi við Bjartmar um þakklætið, virðinguna fyrir landi og þjóð, rauðvínslegna ráðherra og heiðarleikann sem hann einbeitir sér að í verkum sínum.
„Saman í 30 ár? Ég er bara orðlaus yfir þessari spurningu. Það er búið að vera svo gaman hjá okkur Maríu að okkur finnst við hafa byrjað bara í gær,“ segir fjölskyldufaðirinn og tónlistarmaðurinn Bjartmar Guðlaugsson sem fagnaði sextugsafmæli á miðvikudaginn.
Þegar landsmenn hugsa um Bjartmar sjá flestir fyrir sér svarta, síða hárið, leðurjakkann og gítarinn hangandi yfir öxlina á honum. En þarna er líka á ferðinni hamingjusamlega kvæntur fjölskyldufaðir sem á þrjár dætur og fimm barnabörn. Ekki nóg með það heldur einnig tvo ketti, þá Simba og Pétur Eilíf, og hundinn Kormák Héðin.
Rokkarinn síkáti segist eiga eiginkonu og dætrum allt að þakka. María Helena Haraldsdóttir, eiginkona Bjartmars, hefur alla tíð tekið virkan þátt í listsköpun hans og aðstoðað hann í einu og öllu í tónlist og myndlist. Sjálfur segist Bjartmar taka virkan þátt í hennar lífi og áhugamálum og að það sé galdurinn á bak við gott samband.
