
Missti sveindóminn með vændiskonu
16. júní 2012 › 12:24Það var vændiskonan Candy sem leikarinn Charlie Sheen sængaði hjá þegar hann missti sveindóminn fimmtán ára gamall. Leikarinn greinir frá þessu í viðtali við tímaritið Rolling Stone Magazine. Sheen var sem áður sagði fimmtán ára og dvaldi í Las Vegas þegar hann leitaði konuna uppi. Hann reiddi svo fram kreditkort föður síns þegar kom að því að greiða Candy. Kreditkortið var þó raunar stolið frá föður hans, Martin Sheen, sem svaf vært í herbergi við hliðina á herbergi Charlie.
Þeir feðgar dvöldu þá í Las Vegas og ákvað leikarinn óstýriláti að láta slag standa með konunni og segir þetta hafa verið bestu nótt lífs síns.
„Þetta var besta nótt lífs míns,“ segir hann og bætir við: „Þegar pabbi komst að þessu tveimur vikum seinna hafði hann mestar áhyggjur af því að ég væri að rugla kynlífi saman við ást.“
Charlie Sheen hefur lýst yfir dálæti sínu á vændiskonum, en hann segist vera háður konum almennt.
Í sama viðtali segist Sheen hafa verið í afneitun en ekki „sigurvímu“ (e. winning) síðastliðið sumar þegar hann var rekinn úr þáttunum Two and a half men. „Ég var í algjörri afneitun,“ segir hann.
