
Sólar sig með stjörnum
13. júní 2012 › 12:00Förðunarfræðingurinn Margrét R. Jónasardóttir, eða Magga í Make-Up Store eins og hún er gjarnan kölluð, er þessa dagana stödd í sólinni á Frönsku rívíerunni.
Samkvæmt Facebook-síðu Margrétar eru engar aðrar en Hollywood-stjörnurnar Emma Thompson og Pierce Brosnan í nágrenninu að taka upp kvikmyndina Love Punch en Joel Hopkins skrifaði handrit og leikstýrir myndinni.
Margrét hefur lengi haldið úti vinsælli vefsíðu þar sem hún fjallar um tísku, förðun, mat og fram allt um fræga fólkið svo nú hljóp heldur betur á snærið hjá henni.
Athugasemdir
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
