
Sá ekki pabba í marga mánuði
13. júní 2012 › 12:00Söngvarinn, textahöfundurinn og listmálarinn Bjartmar Guðlaugsson er fæddur og uppalinn á Fáskrúðsfirði og bjó hann þar til 7 ára aldurs. „Fyrir mér eru skipin á Fáskrúðsfirði ofsalega minnisstæð, það voru strandferðaskipin, norskir línuveiðibátar og færeyskar skútur og auðvitað íslenskir bátar og mikil umferð. Það má segja að það hafi verið fjölþjóðlegt mannlíf á firðinum og ég var svo hissa á öllu þessu framandi fólki því ég hélt að heimurinn endaði bara rétt utan við fjörðinn,“ segir Bjartmar og hlær.
„Mér fannst til að mynda eldhúsið hennar ömmu minnar á Fráskrúðsfirði vera stærsta eldhús í heimi, en svo var það bara pínulítið og ég skil ekki hvernig allt þetta fólk gat komist fyrir í þessu eldhúsi.“
Bjartmar er afmælisbarn dagsins hjá DV en hann á afmæli í dag 13.júní.
