
Leoncie með lífverði í Keflavík
13. júní 2012 › 21:17„Hún fór fram á þetta,“ segir Ólafur Geir Jónsson, eigandi umboðsskrifstofunnar agent.is og einn aðstandenda Keflavík Music Festival 2012. Það vakti athygli margra sem sóttu tónleika indversku prinsessunnar Leoncie á hátíðinni um síðustu helgi að lífverðir fylgdu henni í hvert fótmál. Óli Geir segir lífverðina hafa passað vel upp á „drottninguna“ eins og sjá má á meðfylgjandi myndum, en DV fékk góðfúslegt leyfi frá aðstandendum hátíðarinnar til að birta þær.
„Hún kom til landsins á miðvikudaginn og fór aftur á sunnudaginn. Hún fór auðvitað fram á að vera með almennilega gæslu í kringum sig,“ segir Óli Geir í samtali við DV. Eins og sjá má á myndunum fylgdu lífverðirnir Leoncie hvert sem hún fór og virðist hún ánægð með návist þeirra. „Þeir pössuðu hana allt festivalið og það gekk rosalega vel.“ Aðspurður um það hversvegna Leoncie hafi talið sig þurfa lífverði á hátíðinni segir Óli Geir: „Hún lenti í einhverri histeríu þarna í Sandgerði sem ég veit lítið um, en hún var bara smeyk greyið og fór fram á þetta.“
Óli Geir segir tónlistarhátíðina hafa gengið framar vonum, fjöldi fólks hafi mætt og Leoncie hafi troðfyllt á tónleikana sína. „Það var bara allt fullt og allir sáttir.“ Hann segir ljóst að Leoncie sé mikil goðsögn í íslensku tónlistarlífi. „Það er bara þannig.“ Enginn hafi þorað að abbast upp á hana í fylgd lífvarðanna. „Nei nei, þarna voru bara allir með bros á vör.“
