Gísli Örn: „Hélt sambandinu leyndu“

27. maí 2012 › 11:00

„Nína Dögg ætlaði aldrei að verða neitt annað en leikkona, þannig að hún sótti um á sama tíma. Við héldum því leyndu að við værum par – eða vorum ekkert að flagga því enda voru alls konar sögur í gangi um að pör kæmust síður inn,“ segir Gísli Örn Garðarsson leikari en kærasta Gísla og barnsmóðir er leikkonan Nína Dögg Filippusdóttir.

Gísli segist lítið hafa hugsað út í það ef annað þeirra myndi komast inn en hitt ekki. „Auðvitað hefði líf okkar þá verið allt öðruvísi. Það er sagt að leiklistarskólinn rústi öllum samböndum. Það er að segja ef annað er í skólanum. Ef svo hefði farið hefðum við komist að því hvort það er satt,“ segir hann og bætir við að þeim Nínu hafi ekki reynst erfitt að vera saman í náminu.

„Í leiklistarbekk verða allir eins og eiginmenn og eiginkonur. Fólk er saman allan sólarhringinn. Það passar því ágætlega að vera kærustupar í náminu. Ég mæli allavega ekkert gegn því.“

Lestu einlægt viðtal við Gísla Örn í Helgarblaði DV.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.