„Ég hef fengið mikinn stuðning frá fjölskyldu og vinum og ég reyni að gera allt sem best ég get“

„Ég er bæði móðir og faðir í dag“

26. maí 2012 › 10:00

„Ég skulda henni það að halda áfram að vinna að hennar baráttumálum,“ segir Gísli Kr. Björnsson, en árið 2011 var harmi þrungið ár í lífi hans. Gísli missti eiginkonu sína og nýfædda dóttur, en eftir stendur litla Sigríður Hanna, sem þykir lifandi eftirmynd móður sinnar. Gísli ræddi við Kristjönu Guðbrandsdóttur um lífið, sorgina og baráttumál Hönnu sem hann hefur gert að sínum eigin; að bæta aðbúnað fjölskyldna á kvennadeild Landspítalans.

Nú leggur Gísli hart að sér í föðurhlutverkinu. Hann er ekkill með þrjú börn og viðurkennir að vissulega geti það verið krefjandi. Hann finnur þó mikla gleði í föðurhlutverkinu.

„Ég hef fengið mikinn stuðning frá fjölskyldu og vinum og ég reyni að gera allt sem best ég get. Ég er bæði móðir og faðir í dag,“ segir hann. „Ég reyni að halda í jákvæðni Hönnu sem var ólýsanleg. Brosið og hjartahlýjan höfðu áhrif á alla sem kynntust henni. Hún var líka alltaf fyrst og fremst móðir og eiginkona og rækti það hlutverk af alúð.

Gísli er í viðtali í helgarblaði DV og í sama blaði er að finna úttekt á ástandi kvennadeildar Landspítalans þar sem aðstæður kvenna sem þurfa að leita sér lækninga á kvenlækningadeild eru kannaðar

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.