• Molar um málfar og miðla 1232

    Eiður Guðnason

    Molalesandi vitnar í netfrétt á dv.is (15.06.2013) um lát fyrsta Ferrari sigurvegarans.), en þar segir: ,,Gonzalez keppti í formúlunni þar til árið 1960. Luca di Montezemolo forseti Ferrari samsteypunnar syrgir Gonzales og segir fyrirtækið hafa misst sannan vin. „ Fréttin af andláti Gonzales syrgði mig mikið. Við spjölluðum nýverið saman, töluðum um kappakstur og bíla eins ...

  • LÍU EÐA HEIMILIN?

    Lýður Árnason

    Loforð ríkisstjórnarinnar um skuldaniðurfellingu heimilanna gerði út um síðustu kosningar.  En nú setur ríkisstjórnin í forgang að fella niður löngu tímabæra hækkun veiðigjalda á útvegsmönnum, hópi sem í 30 ár hefur notið einokunaraðgengis að sameiginlegri auðlind þjóðarinnar, fiskimiðunum.  Þessi hópur hefur verið í sviðsljósinu fyrir allskonar kvótabrask, fjármálasukk, kennitöluflakk, skuldaniðurfellingar og afskriftir.  Helstu forsvarsmenn útgerðarinnar, ekki ...

  • Slitastjórnir og samhengi hlutanna

    Teitur

    Laun þeirra sem eru í skilanefndum föllnu bankana koma alltaf reglulega í umræðuna.  Þegar það gerist fer af stað atburðarás sem er alltaf eins.  Hneykslunarbylgja skekur umræðuna enda má svo sem segja að það eru ekkert allir með rúman 35 þúsund kall í tímakaup.  Það er svolítið bjagað að bera sitt eigið tímakaup saman við tímakaup ...

  • 10.000

    AK-72

    Í gær setti ég ásamt félaga mínum af stað undirskriftalista með áskorun til Alþingis um að breytingarfrumvarp ríkistjórnarinnar á veiðigjöldum yrði ekki samþykkt og þeim haldið óbreyttum auk þess sem ef að Alþingi yrði ekki við þessu að skora þá á forsetann að skjóta málinu til þjóðarinnar. Og nú fyrir stuttu fór fjöldi skráðra yfir 10.000. ...

  • Meira um tossaskap

    Haukur Logi Karlsson

    Í síðasta pistli hélt ég fram að oftast sé sterkt orsakasamband á milli árangurs í námi og þeirrar vinnu sem í námið er lagt af hálfu nemandans. Nærtækt væri því að leita skýringa á tossaskap í þessu orsakasambandi. Kenninguna lagði ég til höfuðs þeirri skýringu að tossar yrðu til þegar fólk er látið læra hluti sem ...

  • Molar um málfar og miðla 1231

    Eiður Guðnason

    Góðvinur Molanna, Helgi Haraldsson, prófessor emerítus í Osló, sendi eftirfarandi: „„Að sjálfsögðu eru þau ekki búin að slíta samvistir og hún verður auðvitað hér á þjóðhátíðardaginn,“ segir Örnólfur Thorsson,“ Helgi bætir við: ,,Ég trúi því ekki að Örnólfur hafi komist svona að orði!” Molaskrifari þakkar sendinguna. Í Kringlunni (14.06.2013) vék sér maður að Molaskrifara og þakkaði ...

  • Óbreytt veiðigjald-Undirskriftalisti

    AK-72

    Eins og velflestir vita þá er eitt fyrsta verk ríkistjórnarinnar að leggja fram frumvarp um lækkun á veiðigjaldi á sumarþingi en veiðigjaldinu er ætlað að tryggja að þjóðin fái eðlilega rentu fyrir notkun útgerðarfyrirtækja á sameiginlegri fiskveiðiauðlind allra landsmanna. Á sama degi og ríkistjórnin lagði fram þetta frumvarp þá héldu forystumenn hennar blaðamannafund þar sem þeir ...

  • Fjöltefli í dag!

    Skáklandið

    Eins og undanfarin ár mun Skákakademían standa fyrir fjöltefli á 17. júní. Fjölteflið fer fram við útitaflið í Lækjargötu. Dagskráin hefst klukkan tvö og stendur til fimm. Nokkrir skákmeistarar munu tefla við gesti og gangandi. Helst bera að nefna þá Hjörvar Stein Grétarsson sem mun hefja fjölteflið og nýbakaðan Íslandsmeistara Hannes Hlífar Stefánsson. Þeir félagar munu einnig taka léttar ...

  • „Ég kem alltaf aftur“

    Baráttan við holdið

    Þessa dagana stendur yfir undirbúningur vegna göngunnar á Mont Blanc eða Hvíta fjallið eins og það útleggst á íslensku. Planið er að fara á fjallið hvíta dagana eftir 15. september. Alls verða það væntanlega sjö manns að mér meðtöldum sem leggja til atlögu við þennan hæsta tind Evrópusambandsins sem er um 4.800 metrar að hæð.   ...

  • Sérhagsmunir á sumarþingi

    Jóhann Páll

    „Við þurfum aðeins svigrúm til þess að auka fjárfestingu, til þess að skapa meiri tekjur,“ sagði Páll Jóhann Pálsson, þingmaður Framsóknarflokksins og einn af eigendum stórútgerðarinnar Vísis hf, í umræðum um lækkun sérstaka veiðigjaldsins í vikunni. Eins og fram hefur komið er fyrirtæki þingmannsins annað af þeim tveimur útgerðarfélögum sem fá hlutfallslega mesta lækkun ef frumvarp Sigurðar ...

  • FEGURÐ OG FREKJA

    Lýður Árnason

    Fegurðarsamkeppnin Ungfrú Ísland stefnir í að verða spennandi í ár.  Og sem endranær skiptist þjóðin í tvennt.  En útlitsdýrkun er eins og innlitsdýrkun, afstæð og þverstæð.  Fegurðin að innan þykir best en er konan sem kyndir ofninn einhvers metin?  Er það slík manneskja sem velst í best launuðu störfin og þau eftirsóttustu?  Fórnfýsi er einn fallegasti ...

  • Hverju breytir iOS7?

    Símon.is

    Síðasta haust gekk Apple í gegnum talsverðar skipulagsbreytingar. Hönnun á úttliti og viðmóti iOS hafði verið í höndum Scott Forstall en hönnun á vélbúnaði í höndum Jony Ive. Scott Forstall var látinn fara, að mestu út af kortaklúðrinu, og Ive tók við sem yfirhönnuður nýrrar hönnunardeildar. Hann stýrir nú hönnun allra Apple vara, stýrikerfum og hugbúnaði. ...