fbpx
Þriðjudagur 16.apríl 2024
Fókus

Karl Olgeirsson gefur út Mitt bláa hjarta – „Það voru örlög mín að verða tónlistarmaður“

Ragna Gestsdóttir
Sunnudaginn 9. september 2018 18:30

Ljósmynd: DV/Hanna

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tónlistarmaðurinn Karl Olgeirsson gefur föstudaginn 14. september út Mitt bláa hjarta, 14 nýja jazzsöngva í nótnabók og heldur sama kvöld útgáfutónleika í Hannesarholti, þar sem hann syngur lögin upp úr bókinni og segir sögur tengdar þeim. Í lok október kemur síðan út tvöföld vínylplata og geisladiskur sem Karl er að safna fyrir á hópfjármögnunarvefnum Karolina Fund. Mitt bláa hjarta er fyrsta sólóplata Karls, sem hefur lifað og hrærst í tónlist frá barnsaldri.

„Ég hef alltaf verið djassari og mér finnst gaman að hlusta á djass þegar ég er heima og þó ég sé að vinna í söngleikjum og alls konar poppi þá hef ég verið að færa mig í djassinn,“ segir Karl, aðspurður um af hverju djassplata varð fyrir valinu sem fyrsta sólóplatan.

Ljósmynd: DV/Hanna

„Ég byrjaði á því að ákveða að gefa út nótnabók. Síðan hugsaði ég að það þyrftu að vera til upptökur fyrir fólk til að heyra lögin, fór að ræða við tónlistarfólk hvort það væri ekki til í að taka upp með mér og varð þá mun spenntari fyrir plötunni en nótnabókinni. En það styttist í útgáfu bókarinnar og ég er eðlilega líka spenntur fyrir henni.“

Í fyrra gaf Karl út Happy Hour með Ragga Bjarna ásamt Karl Orgeltríó og sólóplötu Helenu Eyjólfsdóttur sem kom út árið áður. Karl segir að það sé í raun algert rugl að gefa út plötu í dag, en markhópurinn sé kannski hópur sem kaupir ennþá plötur. Mitt bláa hjarta kemur út bæði á geisladiski og á tvöfaldri vínylplötu. „Þetta eru svo mörg lög að það verður að vera tvöföld plata,“ segir Karl, „og það var sama við hvern ég talaði það voru allir til í að vera með. Góðviljaðasta fólk sem ég veit um er tónlistarfólk, það er til í að vera með í alls konar söfnunum til að hjálpa öðrum og að hjálpa öðru tónlistarfólki. Ég bjó í Svíþjóð um tíma og þar er algengt að fólk sé að vinna saman í teymum, svona samstarf, þetta þekkist ekki mikið hér á Íslandi.“

Mitt bláa hjarta fjallar um ástir, söknuð, borgarlíf og fleira

Karl semur öll lög og alla texta fyrir utan einn og tveir eru samdir í samstarfi við aðra. „Það er líka svo skemmtilegt, ég hef samið hundruð laga í gegnum tíðina en aldrei áður gert heila plötu með lögum.“

Á plötunni, sem tekin var upp í júlí síðastliðnum, syngja tólf söngvarar en auk þeirra koma átta hljóðfæraleikarar við sögu. Ragnheiður Gröndal, Bogomil Font, KK og Helgi Hrafn Jónsson ásamt fleirum syngja lögin sem fjalla um ástir, söknuð, borgarlíf, veðrið og athyglisbrest svo eitthvað sé nefnt. Kona Karls, Sigga Eyrún, syngur eitt lag. „Það er auðvelt fyrir okkur að vinna saman þar sem við búum saman. Það er sagt að tónlistin sé hjákona en stundum er hún konan mín og Sigga hjákonan,“ segir Karl og bætir við, aðspurður hvort það sé gott að eiga maka sem er líka í tónlist og skilji það sem í því felst, að hann haldi að það sé eina leiðin.

„Ég er gríðarlega þakklátur fyrir að gera það sem ég elska“

Karl byrjaði að spila á hljóðfæri og semja þegar hann var fjögurra ára, var í hljómsveitum í grunnskóla og farinn að spila með hljómsveitum og fá greitt fyrir það þegar hann var kominn í MH. „Ég fann það í náminu að ég var ekki að fara að nýta mér stúdentsprófið neitt. Ég vissi alltaf að ég væri tónlistarmaður,“ segir Karl. „Það voru örlög mín að verða tónlistarmaður eins og Egill Ólafsson söng.

Ég er gríðarlega þakklátur fyrir að gera það sem ég elska að gera. Ég er svo heppinn að ég geri svo margt.“ Karl er í útsetningum, vinnur sem undirleikari, tónlistarstjóri, hljóðfæraleikari í hljómsveitum og upptökustjóri í hljóðverum.

„Ég get hlaupið í svo margt og þá er auðvelt að vera tónlistarmaður á Íslandi. En maður þarf að hafa allar klær úti og elska það sem maður gerir þannig að maður sé ekki að kvarta yfir að vinna um helgar.“

Ljósmynd: DV/Hanna

Næsta stóra verkefni hjá Karli, eftir útgáfu plötunnar, er jólasýning Þjóðleikhússins, Einræðisherrann eftir Chaplin, sem byrjar í lok október. „Þetta er mjög spennandi verkefni. Ég er hljóðfæraleikarinn og spila Chaplin á píanó og sé um alla hljóðeffekta líka. Ég sá sýninguna í Kaupmannahöfn í vor og var alveg hugfanginn. Siggi Sigurjóns er Chaplin og ég er spenntur fyrir þessu verkefni.

Ég byrjaði í Rocky Horror í MH og hef eiginlega ekki hætt síðan, það koma nokkur ár sem maður er ekki í leikhúsinu svo dettur maður aftur inn. Það er alltaf lifandi tónlist í söngleikjum og oft í barnaleikritum líka en mér finnst verða algengara að það sé lifandi tónlist í leiksýningum.“

Þeir sem vilja styrkja útgáfu vínylplötunnar geta farið á karolinafund.com og fundið þar verkefnið Mitt bláa hjarta. Þar er í boði að kaupa sér eintak af plötunni fyrirfram, hvort heldur sem er í stafrænu niðurhali, á geislaplötu eða vínyl. Einnig er hægt að kaupa nótnabókina og jafnvel stofutónleika með höfundinum.

 

Hér er textabrot þriggja laga á Mitt bláa hjarta.

„Ég sá fyrir mér nátthrafn á leiðinni af kránni og fannst að hann ætti skilið lítinn sálm.“

Vefðu mig örmum húmið blítt 

Vefðu mig örmum húmið blítt

og verndaðu mig í nótt.

Á ferli eru skuggar og alls konar fólk

svo mér verður ekki rótt.

Ljósin í bænum lýsa dauft

á döggvotar göturnar heim

en kannski væri ráð

að fara hvergi í bráð

og halla sér ofurhljótt.

Vefðu mig örmum húmið blítt

og verndaðu mig í nótt.

Ljósmynd: DV/Hanna

„Mér þykir þessi skemmtilegur því hann nefnir nokkra staði í Reykjavík og það kemur fyrir vikið smá Jóns Múla og Jónasarbragð af þessu. Þar fyrir utan stríðir hann manni, segir í raun og veru ekkert um hvað gerðist en tiltekur mjög nákvæmlega hvar.“

Norðurmýrarmegin við Klambratún 

Norðurmýrarmegin við Klambratún

mættust þau í fyrsta sinn hann og hún.

Dáldið alveg ótrúlegt gerðist þá

sem ekki nokkur sá.

Er það ekki helber synd

að enginn hafi smellt af mynd

þennan bjarta dag upp við Klambratún

við Rauðarárstíg gegnt Kjartansgötu?

„Þetta er textinn úr titillaginu. Mér datt í hug þar sem ég horfði á Esjuna að fjarlægðin gerði líka hjörtu mannanna blá því maður verður jú sorgmæddur þegar maður er fjarri þeim sem maður elskar. Þannig að fjallið og hjartað sitja og fella tár saman, bæði blá!“

Ljósmynd: DV/Hanna

Mitt bláa hjarta 

Fjarlægðin gerir fjöllin blá

og hjörtun sem henni deila.

Tíminn þótt eigi að græða sár

aldrei nær þau að heila.

Því þótt líði þúsund ár

sitja og saman fella tár

fjallið háa bratta

og mitt bláa hjarta.

 

Útgáfutónleikar í Hannesarholti, viðburður á Facebook.

Söfnun á KarolinaFund.

 

 

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Tinna er líklega búin að finna móður sína – „Ég þarf að vera tilbúin til að fara út til þegar kallið kemur“

Tinna er líklega búin að finna móður sína – „Ég þarf að vera tilbúin til að fara út til þegar kallið kemur“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Einn dáðasti leikarinn á leið í hnapphelduna eftir að unnustan fór á skeljarnar

Einn dáðasti leikarinn á leið í hnapphelduna eftir að unnustan fór á skeljarnar
Fókus
Fyrir 3 dögum

„Það var mjög erfitt að horfa upp á ungan mann í dauðastríði“

„Það var mjög erfitt að horfa upp á ungan mann í dauðastríði“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Jón Arnar byrjaði skyndilega að missa hárið – Hefði gert þetta öðruvísi í dag

Jón Arnar byrjaði skyndilega að missa hárið – Hefði gert þetta öðruvísi í dag
Fókus
Fyrir 4 dögum

Læknir segir að þú getir sagt til um typpastærð karlmanns með því að horfa framan í hann

Læknir segir að þú getir sagt til um typpastærð karlmanns með því að horfa framan í hann
Fókus
Fyrir 4 dögum

Prinsinn rýfur þögnina eftir að Katrín greindi frá krabbameinsgreiningunni

Prinsinn rýfur þögnina eftir að Katrín greindi frá krabbameinsgreiningunni