fbpx
Þriðjudagur 23.apríl 2024
Fókus

Magnús og Jóhann bæta við aukatónleikum í Bæjarbíói

Ragna Gestsdóttir
Fimmtudaginn 13. september 2018 16:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Vegna mikillar eftirspurnar á tónleika Magnúsar Þórs Sigmundssonar og Jóhanns Helgasonar í Bæjarbíói bæta þeir félagar við aukatónleikum miðvikudagskvöldið 19. september næstkomandi.
Hljómsveitarstjóri er Börkur Hrafn Birgisson kenndur við Jagúar og Benzin music. Á dagskránni verður samantekt af bestu lögum þeirra. Það vita ekki allir en þeir eiga aragrúa af lögum sem lifað hafa með þjóðinni í flutningi þeirra sem og annara listamanna. TIl gamans má nefna brot af lögunum:
Álfar
Söknuður
Blue Jean Queen
Jörðin sem ég ann
Í Reykjavíkurborg
Þú átt mig ein
Eftir frábæra tónleika þeirra félaga í Bæjarbíói í október í ákváðu þeir að halda tónleika aftur núna í ár, en þakið ætlaði hreinlega af rifna af Bæjarbíói, svo mikil voru fagnaðarlætin eftir síðustu tónleika þeirra. Margir höfðu á orði að þetta væru þeir mögnuðustu tónleikar sem þeir hefðu séð.
Í ár eru einmitt 45 ár síðan fyrsta plata þeirra kom út. Grípum hér niður í ágrip af sögu þessara frábæru listamanna:
„Leiðir Magnúsar Þórs Sigmundssonar og Jóhanns Helgasonar lágu fyrst saman í hljómsveitinni Nesmenn en Jóhann hafði áður verið með Rofum. Þegar Nesmenn gáfust upp árið 1968 héldu þeir félagar samstarfinu áfram fyrst með rafmagnsgítarana sína en skiptu þeim fljótlega út fyrir kassagítara.
Þeir Magnús og Jóhann náðu samningi við Fálkann, héldu í hljóðver og tóku upp eigin lagasmíðar og texta sem allir voru á enskri tungu. Samningurinn við Fálkann klikkaði og kom fyrsta plata þeirra Magnúsar og Jóhanns því ekki út fyrr en um haustið 1972 á útgáfumerkinu Scorpion. Lagið Mary Jane náði vinsældum og hefur haldið uppi merki plötunnar síðan.
Seinna varð hljómsveitin Change til og undir þeim fána störfuðu þeir báðir að mestu á árunum 1973-1975. Eftir að sveitin lagði upp laupana fyrir jólin 1975 héldu þeir Magnús og Jóhann hvor í sína áttina. Magnús Þór hóf sjálfstæðan feril og sendi frá sér nokkrar plötur á næstu árum. Meðal annarra hina mögnuðu plötu Álfar. Jóhann sinnti einnig sólóferli og lagasmíðum, auk þess að verða helmingur dúettsins Þú og ég.
Eftir þá félaga liggja fjölmörg lög sem eru stór hluti af íslenskri dægurlagasögu, lög eins og Ást, Söknuður, Dag sem dimma nátt, Yakety Yak, Þú átt mig ein, Blue Jean Queen, Mary Jane, Seinna meir, She’s Done it Again, Ísland er land þitt og fleiri, en mörg þessara laga hafa þeir aldrei flutt sjálfir.“
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Snýst ekki um að taka sviðsljósið frá körlum heldur beina því einnig að konum – „Þetta er mjög karllægur bransi og hefur alltaf verið“

Snýst ekki um að taka sviðsljósið frá körlum heldur beina því einnig að konum – „Þetta er mjög karllægur bransi og hefur alltaf verið“
Pressan
Fyrir 2 dögum

47 ár frá upphafi tveggja tímamótageimferða

47 ár frá upphafi tveggja tímamótageimferða
Fókus
Fyrir 3 dögum

Katrín Myrra keypti miða aðra leið út til Taílands og það breytti lífi hennar

Katrín Myrra keypti miða aðra leið út til Taílands og það breytti lífi hennar
Fókus
Fyrir 4 dögum

Simmi Vill um árshátíðardrama Landsvirkjunar – Segir að önnur stórfyrirtæki megi frekar skammast sín

Simmi Vill um árshátíðardrama Landsvirkjunar – Segir að önnur stórfyrirtæki megi frekar skammast sín
Fókus
Fyrir 5 dögum

Guðbjörgu var útskúfað fyrir að tala um 47 ára aldursmun föður síns og barnsmóður hans – „Ætla ekki að þegja og taka þátt í þessum leik“

Guðbjörgu var útskúfað fyrir að tala um 47 ára aldursmun föður síns og barnsmóður hans – „Ætla ekki að þegja og taka þátt í þessum leik“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Er fyrsta vara lífsstílsmerkis Markle algjört flopp? – Sultukrukkan skilar sér ekki á samfélagsmiðla

Er fyrsta vara lífsstílsmerkis Markle algjört flopp? – Sultukrukkan skilar sér ekki á samfélagsmiðla