fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fókus

Fjölskyldustund með Siggu Dögg

Ragna Gestsdóttir
Fimmtudaginn 13. september 2018 09:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

 Á föstudaginn næstkomandi hefjast fjölskyldustundir í Borgarbókasafninu í Kringlunni. Þá ætlar hún Sigga Dögg, kynfræðingur, að halda erindi um þau áhrif sem nýtt barn hefur á foreldra og hvernig fræða má börn frá fæðingu um líkamann, samþykki og ást.

  

Borgarbókasafnið Kringlunni býður nú í fyrsta sinn upp á fjölskyldustundir fyrir foreldra með ungabörn og börn á leikskólaaldri. Fjölskyldustundirnar verða vikulega á föstudögum kl. 14-15 og eru þær tilvalinn vettvangur fyrir nýbakaða foreldra til að hittast, bera saman bækur sínar og deila reynslu sinni í notalegu og hlutlausu umhverfi. Þroskaleikföng verða á staðnum fyrir börnin og kaffi og te fyrir fullorðna. Öðru hverju verður boðið upp á viðburði eða fræðslu sem tengist uppeldi og foreldrahlutverkinu.

 

Allir velkomnir og frítt inn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Hún segir þetta vera „náttúrulegt Ozempic“ og margir eiga það nú þegar í eldhússkápnum

Hún segir þetta vera „náttúrulegt Ozempic“ og margir eiga það nú þegar í eldhússkápnum
Fókus
Fyrir 3 dögum

„Ég er í dag ekki vitund hrædd við dauðann. Það kom eftir þessa lífsreynslu.“

„Ég er í dag ekki vitund hrædd við dauðann. Það kom eftir þessa lífsreynslu.“