Tónlistarmaðurinn góðkunni Svavar Knútur sendir frá sér nýja plötu í september en lagið Morgunn af plötunni er þegar farið á hljóma á útvarpsstöðvum og klífa upp vinsældalista Rásar 2.
Smekksatriði eru ekki staðreyndir og erfitt er að deila um smekk en það er skoðun okkar á DV að þetta nýja lag Svavars Knúts sé frábært og einstaklega áheyrilegt. Lagið var hvorki komið á Youtube né Spotify þegar DV hafði samband við Svavar Knút undir helgi en hann setti saman fyrir okkur Youtube-myndband svo lesendur gætu fengið að njóta þessara ljúfu tóna. Myndbandið er hér að neðan.
Um lagið segir Svarar Knútur:
„Lagið er í rauninni bara lofsöngur um alla heimsins morgna. Hvað þeir eru fallegir og merkilegir á svo fjölbreyttan og æðislegan hátt. Tilfinningin að vakna og horfa út í heiminn og sjá alla möguleikana og fegurðina. Frábær hópur sem vann þetta með mér og mestmegnis tekið upp í stofunni heima.“