fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024

Síðustu tónleikarnir í sumartónleikaröð Schola cantorum

Ragna Gestsdóttir
Þriðjudaginn 28. ágúst 2018 12:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nú er komið að tíundu og síðustu tónleikunum í sumartónleikaröð Schola cantorum, kammerkórs Hallgrímskirkju. Kórinn hefur fengið glimrandi móttökur í sumar og glatt marga tónleikagesti með töfrandi og áhrifamiklum söng. Unnendum kórtónlistar gefst nú kostur á að láta hlýjan og fagran söng umvefja sig áður en að haustið skellur á. 

Miðvikudaginn 29. ágúst kl. 12 syngur hinn margrómaði kammerkór Hallgrímskirkju, Schola cantorum, íslenskar og erlendar kórperlur eftir Jón Ásgeirsson, Jón Nordal, Sigvalda Kaldalóns, Händel, Byrd, Bruckner, Mendelssohn og Hjálmar H. Ragnarsson. Stjórnandi er Hörður Áskelsson. Tónleikagestum er boðið í kaffi og spjall við meðlimi kórsins að tónleikunum loknum. Miðaverð 2.500 kr.

Miðvikudaginn 29. ágúst kl. 12: Schola cantorum

Efnisskrá:

Vorvísa Texti: Halldór Laxness 1902‒1998

Músik: Jón Ásgeirsson *1928

Stóðum tvö í túni Texti: Þjóðvísa / Icel. traditional

Músík: Ísl. þjóðlag / Icel. traditional

Úts./ Arr.: Hjálmar H. Ragnarsson *1952

Smávinir fagrir Texti: Jónas Hallgrímsson 1807‒1845

Músik: Jón Nordal *1926

Á Sprengisandi Texti: Grímur Thomsen 1820‒1896

Músik: Sigvaldi Kaldalóns 1881‒1946

Úts./ arr.: Jón Ásgeirsson

Ave Verum Corpus Texti: Latneskur hymni / Latin hymn

Músik: Willian Byrd 1540‒1623

Herr, nun lässest du Texti: Luk. 2. 29–37

Músik: Felix Mendelssohn-Bartholdy 1809‒1849

Locus iste Músik: Anton Bruckner 1824‒1896

Dagur er nærri Kristján Valur Ingólfsson, *1947

Músik: George Fridrich Handel 1675‒1759

Schola cantorum, kammerkór Hallgrímskirkju, hefur frá upphafi hlotið mikla athygli fyrir fágaðan og tæran söng sinn. Kórinn var valinn „Tónlistarflytjandi ársins 2016” á Íslensku tónlistarverðlaununum í mars 2017 og hefur unnið til verðlauna í erlendum keppnum og komið fram á tónleikum í Noregi, Svíþjóð, Finnlandi, Ítalíu, Spáni, Þýskalandi, Frakklandi, Japan, Sviss og Bandaríkjunum. Schola cantorum var útnefndur Tónlistarhópur Reykjavíkurborgar 2006, tilnefndur til tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs 2007 og Íslensku tónlistarverðlaunanna 2013. Kórinn hefur frá upphafi leikið mikilvægt hlutverk í íslensku tónlistarlífi og frumflutt verk eftir fjölda íslenskra tónskálda auk þess að flytja tónlist allra stíltímabila með og án hljóðfæraundirleiks, m.a. í samstarfi við Sinfóníuhljómsveit Íslands, Alþjóðlegu barokksveitina í Hallgrímskirkju (áður Den Haag), Björk, Sigurrós o.fl. Kórinn kom einnig fram á 5 tónleikum á tónlistarhátíðinni Reykjavík Festival í Walt Disney Hall í Los Angeles í apríl 2017, þ.s. söngur kórsins hlaut einróma lof í allri umfjöllun stórblaða svo sem New York Times, LA Times og fleiri. Stjórnandi kórsins frá upphafi er Hörður Áskelsson.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 5 klukkutímum

Siggi stormur óvenju bjartsýnn varðandi sumarið – „Ég er eiginlega í sjöunda himni yfir þessu”

Siggi stormur óvenju bjartsýnn varðandi sumarið – „Ég er eiginlega í sjöunda himni yfir þessu”
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Ógeðslegt athæfi – Pissaði í glas og skvetti á aðra áhorfendur

Ógeðslegt athæfi – Pissaði í glas og skvetti á aðra áhorfendur
Fréttir
Fyrir 7 klukkutímum

Ofbeldismenn herja á starfsfólk Héraðssaksóknara

Ofbeldismenn herja á starfsfólk Héraðssaksóknara
Pressan
Fyrir 7 klukkutímum

Leikfimiskennari sakaður um að taka nektarmyndir af yfir 100 stúlkum

Leikfimiskennari sakaður um að taka nektarmyndir af yfir 100 stúlkum
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Setur glæsilegt hús sitt á sölu – Vill fá 800 milljónir fyrir það

Setur glæsilegt hús sitt á sölu – Vill fá 800 milljónir fyrir það
Pressan
Fyrir 8 klukkutímum

Varpa sprengju inn í Gilgo-morðmálið – Er lögreglan að fela eitthvað ?

Varpa sprengju inn í Gilgo-morðmálið – Er lögreglan að fela eitthvað ?
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Miklar breytingar á enska bikarnum um næstu helgi – Ekki spilað í deildinni um sömu helgi

Miklar breytingar á enska bikarnum um næstu helgi – Ekki spilað í deildinni um sömu helgi
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Eiginkona Gundogan blandar sér í stríðið í klefanum hjá Barcelona

Eiginkona Gundogan blandar sér í stríðið í klefanum hjá Barcelona