Bjarni Frímann Bjarnason blaðar í nótnasafni Halldórs Laxness og flytur úrval verka á flygil skáldsins á síðustu stofutónleikum sumarsins sunnudaginn 26. ágúst kl. 16.
Bjarni Frímann hefur verið áberandi undanfarin misseri í tónlistarlífinu en hann er tónlistarstjóri Íslensku óperunnar og nýráðinn aðstoðarhljómsveitarstjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands.
Miðar eru seldir í safnbúð Gljúfrasteins samdægurs og kosta 2.500 kr. Ókeypis er fyrir börn á leikskólaaldri.