Söngkonan Salka Sól Eyfeld tilkynnti fyrir stuttu á Twitter að hún og hljómsveit hennar Amabadama væru búin að gefa út nýtt lag.
„Nýtt lag sem ég er hrikalega ánægð með, ég var líka stressuð með að gefa það út því ég hef ekki hellt jafn mikið úr hjartanu á mér í texta áður. Vona að þið njótið.“
Lagið var frumflutt í þættinum Allir geta dansað á Stöð 2.