fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024

Flytja tónlist eftir David Bowie í Hörpu: „Þetta var mikið áfall en við urðum að fara aftur á sviðið og halda áfram að spila“

Ágúst Borgþór Sverrisson
Laugardaginn 14. júlí 2018 13:00

David Bowie

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Þegar ég fékk fréttirnar af láti David Bowie fyrir um tveimur og hálfu ári vildi svo til að ég var að spila á tónleikum með bassaleikaranum af síðustu plötu Bowie, Blackstar, Tim Lefebvre. Þetta var í hléinu og fréttirnar voru mikið reiðarslag fyrir okkur. En hvort sem okkur líkaði betur eða verr urðum við að halda áfram að spila og klára tónleikana,“ segir Angelo Bundini, sem undanfarin misseri hefur staðið fyrir tónleikum þar sem framúrskarandi tónlistarmenn leika tónlist eftir David Bowie, þar á meðal fyrrverandi meðspilarar Bowie.

Tónleikaröðin hefur slegið í gegn og eftirspurnin verið mikil. Í október verður þessi sýning í Eldborgarsal Hörpu þar sem hljómsveit Bundini og Sinfóníuhljómsveit Norðurlands, SinfoniaNord, stilla saman strengi sína í túlkun á verkum meistarans.

„Þjálfun mín sem tónlistarmanns liggur mikið í jazzi og tilraunamúsík og ég held að þessi bakgrunnur eigi sinn þátt í því að ég hef laðast að tónlist Davids Bowie. Það er fullkomlega í anda Bowie að þessi hljómsveit samanstendur af mjög framsæknum og skapandi tónlistarmönnum. Við erum til dæmis með Adrian Belew sem spilaði með Bowie og einnig með Frank Zappa. Allur ferill Adrians einkennist af frumleika og sköpun og gítarleikur hans er einstakur. Svo erum við með Todd Rundgren sem hefur komið fram með stórmerkilegar nýjungar bæði í sinni eigin tónlist og sem upptökustjóri,“ segir Bundini og stiklar á stóru um það mikla mannval sem einkennir hljómsveitina.

Snýst ekki um að velta sér upp úr fortíðinni

Eru útsetningar ykkar á tónlist Bowie skapandi eða reynið þið að vera trúir hans útsetningum? Hljómar þetta „eins og Bowie“ eða er þetta skapandi túlkun á tónlist hans?“

„Þetta finnst mér vera frábær spurning. Þetta er ekki virðingarvottur eða „tribue“ heldur „celebration“ – þ.e. við erum að fagna tónlist Bowie. Þetta er hátíð. Fyrir okkur er ekki hægt að hljóma eins og Bowie nema maður sé skapandi í túlkun sinni á tónlist hans. Þannig að vanalega spilum við hans þekktustu verk en við setjum alltaf eitthvað frá okkur sjálfum í tónlistina. Við reynum að hljóma eins og Bowie framtíðarinnar fremur en Bowie fortíðarinnar. Ég byggði hljómsveitina á þessari hugmynd. Þetta er tilraun til að þróa tónlist Bowie áfram og halda henni ferskri. Við horfum ekki til baka heldur horfum við áfram.“

Sýningin Celebrating David Bowie hefur farið víða um heim og eftir Íslandstúrinn í október mun leiðin liggja til S-Afríku þar sem leikið verður í um sjö löndum. „Eftir það verða þetta orðnar fimm heimsálfur og 17 lönd á rúmlega tveimur árum. Árið 2019 ætlum við svo enn að spila á nýjum stöðum,“ segir Bundini sem hlakkar mikið til Íslandsferðarinnar í haust.

„Allir í hljómsveitinni eru gífurlega spenntir fyrir því að koma til Íslands. Ég held að enginn úr hópnum hafi áður spilað á Íslandi. Og það er mikið tilhlökkunarefni að spila tónlist Bowie í svona glæsilegum tónleikasal sem Eldborg í Hörpu er. Við hlökkum mikið til tónleikanna og að hitta Íslendinga. Vonandi gefst okkur tími til að ferðast um landið og skoða okkur um.“

Angelo Bundini.

Sinfóníuhljómsveit Norðurlands

Sinfóníuhljómsveit Norðurlands, sem leikur með hljómsveit Bundini á umræddum tónleikum, var stofnuð haustið 1993 og fyrstu tónleikarnir voru haldnir 24. október það ár. Hljómsveitin hefur leikið nánast allar tegundir klassískrar tónlistar allt frá barokki til nútímatónlistar auk rokks, jazz og popps.

Hljómsveitin hefur átt gjöfult samstarf við ýmsa aðila og stofnanir, t.d. Tónlistarskóla Akureyrar, Hörpu tónlistarhús, Listvinafélag Hallgrímskirkju, Sinfóníuhljómsveit Færeyja og Leikfélag Akureyrar, m.a. við uppsetningu á söngleikjum á borði við Söngvaseið, Oliver, Rocky Horror, Litlu hryllingsbúðina og margt fleira.

Árið 2015 var heiti hljómsveitarinnar breytt í SinfoniaNord og hóf hljómsveitin þá að sérhæfa sig í hljóðritun tónlistar fyrir kvikmyndir auk þess sem hún hefur tekið þátt í stórum tónleikauppfærslum. Meðal verkefna má nefna stórmyndina „The Perfect Guy“, þáttaröð HBO „The Vikings“ og teiknimyndin „Lói þú flýgur aldrei einn“. Hljómsveitin hefur unnið með listamönnum á borð við gítarleikara Genesis, Steve Hackett, Jon Anderson úr YES auk heimamanna eins og Ólafi Arnalds, Todmobile, Dimmu og Amabadama, svo fátt eitt sé nefnt.

Nánari upplýsingar um tónleikana „Celebrating David Bowie“ og miðasala eru á vefnum tix.is.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 klukkutímum

Eiginmaður Katrínar segir þau hafa farið að rífast þegar þau hittust fyrst

Eiginmaður Katrínar segir þau hafa farið að rífast þegar þau hittust fyrst
Pressan
Fyrir 2 klukkutímum

Lögreglan skýrir frá óhugnanlegum upplýsingum varðandi morð

Lögreglan skýrir frá óhugnanlegum upplýsingum varðandi morð
Pressan
Fyrir 5 klukkutímum

Konur lýstu hegðun hans á Facebook – Nú krefst hann bóta

Konur lýstu hegðun hans á Facebook – Nú krefst hann bóta
Fréttir
Fyrir 5 klukkutímum

Segir það verða sannkallaða martröð fyrir Rússa ef þeir ráðast inn í stórborgina Kharkiv

Segir það verða sannkallaða martröð fyrir Rússa ef þeir ráðast inn í stórborgina Kharkiv
Pressan
Fyrir 13 klukkutímum

Sanna sagan á bak við Netflixþættina Baby Reindeer sem hafa slegið í gegn – Hvað varð um Richard og Mörthu og hver er hin raunverulega Martha?

Sanna sagan á bak við Netflixþættina Baby Reindeer sem hafa slegið í gegn – Hvað varð um Richard og Mörthu og hver er hin raunverulega Martha?
Pressan
Fyrir 13 klukkutímum

„Hefurðu séð lík?“ – 14 ára stúlka myrti móður sína og bauð vinkonu heim til að sjá líkið

„Hefurðu séð lík?“ – 14 ára stúlka myrti móður sína og bauð vinkonu heim til að sjá líkið