fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024

Tónar og tjútt Kvennakórs Kópavogs: „Kórastarf er frábær leið til að fylla orkutankinn“

Ragna Gestsdóttir
Mánudaginn 30. apríl 2018 17:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kvennakór Kópavogs, eða KveKó eins og hann er gjarnan kallaður, samanstendur af um það bil 50 uppátækjasömum konum, sem finnst gaman að hittast, syngja, sprella og skemmta sér saman. Og það er sjaldan lognmolla þegar þær koma saman, eins og gefur að skilja.

„Að vera í kór er erfitt að útskýra fyrir þeim sem ekki hafa prófað. Kórastarf er ekki bara söngur, heldur frábær leið til að fylla orkutankinn, bæta geðið, kynnast skemmtilegu fólki og bæta lífsgæðin,“ segja þær.

Þær leggja mikinn metnað í allt sem þær taka sér fyrir hendur, hvort sem það er söngdagskráin eða búningar fyrir árlega æfingahelgi og árshátíð sem ætíð eru haldnar samtímis með ákveðnu þema. Í ár var það Hollywood þema og mætti sjálfur Óskarinn á svæðið ásamt konum í pallíettukjólum, svanakjólum, persónum úr kvikmyndum, já og sjálfum forseta Bandaríkjanna, svo fátt eitt sé nefnt.

Konurnar í KveKó leggja mikinn metnað í æfingar og læra öll lög og texta utan að og syngja blaðlaust á öllum tónleikum og öðrum viðburðum sem þær taka þátt í. Að jafnaði æfa þær einu sinni í viku og svo eru tvær langar laugardagsæfingar á hverju misseri.

Þriggja landa ferð framundan í sumar

Í júní hyggst hópurinn bregða undir sig betri fætinum og fara í þriggja landa ferð til Ítalíu, Slóveníu og Króatíu. Þar verður að sjálfsögðu sungið við hvert tækifæri sem gefst, eins og KveKó er lagið og að sjálfsögðu keyptir varalitir og fleira til að gera sig sætari. Í síðustu utanlandsferð tæmdu þær nánast ónefnda snyrtivörubúð á Ítalíu, svo um var talað þar í einhvern tíma á eftir. Samkvæmt áræðanlegum heimildum var kórkonum kennt um lítið vöruúrval hálfum mánuði seinna þegar Íslendingar voru þar á ferð.

Þér gefst kostur á að uppfylla fjörið

Laugardaginn 5. maí næstkomandi ætlar kórinn að leyfa áheyrendum að njóta með sér góðrar kvöldstundar í veislusal Valsara í Hlíðarenda. Þar munu kórsystur syngja sín uppáhaldslög, bæði erlend og innlend, nýleg og ekki svo nýleg.  Dagskráin verður brotin upp með óvæntum uppákomum þar sem meðal annars er hægt að freista gæfunnar með því að snúa lukkuhjóli. Einnig munu stakar kórkonur stíga út fyrir þann þægindaramma sem kórinn er og flytja lög einar og tvær saman.

Eftir söng og sprell, spilar húsbandið undir dansi fram á nótt. Húsið mun opna kl. 19 og dagskrá hefjast kl. 19:30. Nú er tækifæri til þess að upplifa stemmingu kórsins og mæta á fjöruga kvöldskemmtun þar sem gestir horfa ekki bara á, heldur taka þátt í gleðinni með kórkonum. Allar upplýsingar má finna í viðburði á Facebook.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 11 klukkutímum

Sanna sagan á bak við Netflixþættina Baby Reindeer sem hafa slegið í gegn – Hvað varð um Richard og Mörthu og hver er hin raunverulega Martha?

Sanna sagan á bak við Netflixþættina Baby Reindeer sem hafa slegið í gegn – Hvað varð um Richard og Mörthu og hver er hin raunverulega Martha?
Pressan
Fyrir 11 klukkutímum

„Hefurðu séð lík?“ – 14 ára stúlka myrti móður sína og bauð vinkonu heim til að sjá líkið

„Hefurðu séð lík?“ – 14 ára stúlka myrti móður sína og bauð vinkonu heim til að sjá líkið
Pressan
Fyrir 15 klukkutímum

Stillti sér upp á mynd fyrir eiginmanninn – Andartökum síðar var hún látin

Stillti sér upp á mynd fyrir eiginmanninn – Andartökum síðar var hún látin
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Bikarinn rúllar af stað í kvöld og nú eru stórliðin með – Svona er dagskráin

Bikarinn rúllar af stað í kvöld og nú eru stórliðin með – Svona er dagskráin
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Antony rýfur loks þögnina og útskýrir það sem hann gerði

Antony rýfur loks þögnina og útskýrir það sem hann gerði
Fréttir
Fyrir 16 klukkutímum

Jólaskotárásin á Hvaleyrarholti – Faðirinn skýldi 9 ára dóttur sinni fyrir skothríðinni

Jólaskotárásin á Hvaleyrarholti – Faðirinn skýldi 9 ára dóttur sinni fyrir skothríðinni