Gus Gus, Troyboi, Kiasmos og fleiri bætast við dagskrá Sónar Reykjavík
Teknókóngarnir Gus Gus, breski trap-tónlistarmaðurinn Troyboi og Kiasmos eru meðal þeirra listamanna sem hafa bæst við dagskrá tónlistarhátíðarinnar Sónar Reykjavík, sem fer fram á fjórum sviðum í Hörpu 16. og 17. mars næstkomandi.
Aðrar nýjar viðbætur við dagskrá hátíðarinnar eru Null + Void, Sykur, Cyber, Elli Grill og Bríet.
Meðal þeirra tónlistarmanna sem áður hefur verið tilkynnt að komi fram á Sónar Reykjavík 2018 eru Danny Brown (BNA), Underworld (Bre), TOKiMONSTA (BNA), Lindström (Nor), Nadia Rose (Bre), Ben Frost (Ást/Ísl), Lena Willikens (Þýs), Jlin (BNA), Denis Sulta (Bre), Cassy b2b Yamaho (Bre/Ísl), Kode9 x Köji Morimoto (Bre/Jap), Bad Gyal (Spá), Lorenzo Senni (Íta), Lafawndah (Fra), Moor Mother (BNA), Bjarki, Högni, Hildur Guðnadóttir, Vök, Jói Pé x Króli, Joey Christ, Eva808, Blissful, Flóni og Reyjavíkurdætur.