Rakel Mjöll og hljómsveit hennar, Dream Wife, gefa út sína fyrstu plötu í næstu viku
Bresk-íslenska popprokksveitin Dream Wife prýðir forsíðu nýjasta tölublaðs breska tónlistartímaritsins NME – New Musical Express, sem kemur út í dag. Sveitin er ein af hundrað hljómsveitum eða tónlistarmönnum sem tímaritið, eitt helsta rokkfréttablað Bretlands, telur líklega til stórræða á árinu 2018.
Dream Wife hefur vakið umtalsverða athygli frá því að hún var stofnuð í Brighton fyrir hartnær þremur árum. Hún hefur þróast úr gáskafullum listaskólagjörningi yfir í kraftmikla rokksveit með skýrar femínískar hugsjónir, sem sést jafnt í textum, ímynd og tónleikaumgjörð sveitarinnar.
Þann 26. janúar kemur út fyrsta breiðskífa hljómsveitarinnar, sem nefnist einfaldlega Dream Wife, og hefur nokkur spenningur verið að byggjast upp í Bretlandi vegna plötunnar. Fyrsta smáskífan, Hey Heartbreaker, var til að mynda kynnt sem heimsins heitasta plata – „world’s hottest record“ – af breska ríkisútvarpinu BBC1 í byrjun janúar.
Hægt er að streyma plötunni í takmarkaðan tíma á vefsíðu bandarísku útvarpsstöðvarinnar NPR.
Ítarlegt viðtal er við Rakeli Mjöll, söngkonu Dream Wife, í helgarblaði DV.