fbpx
Fimmtudagur 18.apríl 2024
Fókus

Sycamore Tree gefur út The Street – „Það á enginn að deyja á kaldri götunni. Aðstæður utangarðsfólks á Íslandi eru að mörgu leyti hörmulegar“

Ragna Gestsdóttir
Þriðjudaginn 11. september 2018 11:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hljómsveitin Sycamore Tree gaf í dag út lagið The Street ásamt myndbandi á afmælisdegi Lofts Gunnarssonar, en hann hefði orðið 39 ára í dag. Hann lést 20. janúar 2012, 32 ára gamall.

Sycamore Tree samanstendur af Gunna Hilmarssyni og Ágústu Evu Erlendsdóttur, en Loftur var mágur Gunna.

Í kjölfar andláts Lofts var stofnaður Minningarsjóður Lofts Gunnarssonar sem berst fyrir bættum hag utangarðsfólks á Íslandi. Frá fráfalli Lofts þá hefur hann orðið einskonar andlit baráttunnar fyrir bættum aðbúnaði útigangsfólks á Íslandi.

„Það á enginn að deyja á kaldri götunni. Aðstæður utangarðsfólks á Íslandi eru að mörgu leyti hörmulegar og brot á réttindum þeirra. Það fæðast allir jafnir og við sem samfélag eigum að aðstoða þá sem eru í neyð,“ segja Gunni og Ágústa Eva.

„Það er auðvelt að líta framhjá þessum hópi samfélagsins, afskrifa hann og gleyma. Hann lætur aldrei í sér heyra, röltir þögull um bæinn og lætur lítið fyrir sér fara, biður ekki um neitt og á sér ekki málsvara sem öskrar hátt og getur þrýst á kerfið. Hann nýtur ekki virðingar og verður fyrir fordómum og skilningsleysi.“

Lagið The Street fjallar um síðustu andartökin í lífi Lofts og er flutningurinn og myndbandið tekið upp í einni töku. „Við vildum með þeim hætti ná eins hreinni tilfinningu og hægt er augnablikin sem það var flutt. Það er okkur mikil ánægja að veita Minningarsjóðnum og þessu mikilvæga málefni lið.“

Frá Minningarsjóði Lofts Gunnarssonar

Síðustu vikur hefur umræðan um stöðu utangarðsfólks verið nokkuð áberandi eftir að umboðsmaður Alþingis skilaði áliti um málið og einnig í kjölfar útgáfu skýrslu velferðarvaktarinnar þar sem góðar tillögur um að bæta aðstöðu utangarðsfólks voru kynntar.

Að mati okkar, sem stöndum að Minningarsjóði Lofts Gunnarssonar, er ákveðin staðreynd sem við höfum lengi verið meðvituð um, það mikilvægasta sem kemur fram í úttekt umboðsmanns Alþingis. Það er viðurkenningin á því að ríki og sveitarfélög eru einfaldlega að brjóta á rétti utangarðsfólks með því að sniðganga lögbundna þjónustu sem það hefur rétt á. Það er verið að brjóta almenn lög, stjórnarskrá og einnig er verið að brjóta á fjölþjóðlegum mannréttindaskuldbindingum.

Það er krafa okkar að vinna við að leiðrétta þetta hefjist nú þegar. Við vitum að það er ekki hægt að bjarga öllum sem lenda utangarðs. Hinsvegar eru mörg dæmi um einstaklinga sem hafa verið á götunni og nýtt sér úrræði sem í boði eru og komið sér aftur inn í samfélagið, hversdagshetjur sem hafa með dyggri aðstoð breytt lífi sínu. Hinir, sem ekki ná sér upp, eiga þá réttmætu og lagalegu kröfu að þeim sé skapaðar mannsæmandi aðstæður og aðbúnaður til að gera líf þeirra léttbærara.

Dæmi eru um einstaklinga sem hafa sótt um og fengið samþykkta aðstoð með varanlegt húsnæði en samt beðið meira en áratug og bíða enn. Dæmi eru um dauðsföll á meðan beðið er eftir aðstoð.

Verst er að sú hætta er raunverulega að fólk deyi á götunni vegna þess að öll rúmin voru upptekin þá nóttina því ekki komast allir að í neyðarnæturvist í gistiskýlum.

Við erum ekki að biðja um neitt annað en að þessi þjóðfélagshópur fái lögbundna aðstoð. Við trúum því að við lifum í samfélagi þar sem við hugsum um okkar fólk.

Okkur langar að taka það fram að starfsfólk Gistiskýlisins, Konukots og á fleiri stöðum er að vinna frábært starf við erfiðar aðstæður þar sem allt of litlum fjármunum er varið í þetta málefni.

Loftur Gunnarsson svaf á götunni þegar ekki var pláss í Gistiskýlinu. Hann lést 32 ára gamall. Hann lést úr magasári sem auðvelt hefði verið að meðhöndla. Á þeim tíma sem hann lést var ekki auðvelt fyrir utangarðsfólk að verða sér úti um fordómalausa læknisaðstoð.

Fjöldi utangarðsfólks hefur tvöfaldast á síðustu fimm árum.

Minningarsjóðurinn hefur á frá stofnun hans 2012 keypt margskonar hluti eins og fjölda rúma, sjónvörp, húsgögn, fatnað og margt fleira inn í hin ýmsu úrræði sem utangarðsfólk notar og starfar ötullega eftir markmiði sínu að bæta hag utangarðsfólks.

Loftur Gunnarsson hefði átt afmæli þann 11. september. Að því tilefni og til að auka umræðuna um aðbúnað utangarðsfólks þá hefur Sycamore Tree gefið út lagið The Street  sem fjallar um Loft Gunnarsson og síðustu andartök í lífi hans.

Heimasíða Minningarsjóðs Lofts Gunnarssonar.

Lagið er einnig á Spotify.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Samfélagsmiðlastjarna látin aðeins 36 ára – „Ég botna ekki í neinu lengur en við munum fá meiri upplýsingar á næstu dögum“

Samfélagsmiðlastjarna látin aðeins 36 ára – „Ég botna ekki í neinu lengur en við munum fá meiri upplýsingar á næstu dögum“
Fókus
Í gær

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund
Fókus
Fyrir 2 dögum

Sjáðu senuna sem er sögð sú fyndnasta í Saturday Night Live frá upphafi – Enginn náði að halda andliti

Sjáðu senuna sem er sögð sú fyndnasta í Saturday Night Live frá upphafi – Enginn náði að halda andliti
Fókus
Fyrir 2 dögum

Hrím og Skrímslavinafélagið tilnefndar til barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs

Hrím og Skrímslavinafélagið tilnefndar til barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs
Fókus
Fyrir 4 dögum

Tinna er líklega búin að finna móður sína – „Ég þarf að vera tilbúin til að fara út til þegar kallið kemur“

Tinna er líklega búin að finna móður sína – „Ég þarf að vera tilbúin til að fara út til þegar kallið kemur“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Einn dáðasti leikarinn á leið í hnapphelduna eftir að unnustan fór á skeljarnar

Einn dáðasti leikarinn á leið í hnapphelduna eftir að unnustan fór á skeljarnar