fbpx
Fimmtudagur 18.apríl 2024
Fókus

Styrmir Örn Guðmundsson framkvæmir Líffæraflutning

Ragna Gestsdóttir
Laugardaginn 8. september 2018 15:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Á morgun, sunnudaginn 9. september kl. 15, fremur Styrmir Örn Guðmundsson gjörning sem ber nafnið: Líffæraflutningur á Gerðasafni í Kópavogi.

Í verkinu hefur Styrmir mótað seríu leirskúlptúra sem hver og einn sækir form sitt í lögun líffæra. Styrmir valdi líffærin út frá forminu því hér gegna þau hlutverki hljóðfæra.  Maginn er Udu tromma, lifrin er flauta, lungun búa til sama hljóm og dauðaflautur Azteka og heilinn er gæddur hljóðgervli sem býr til rafhljóð.

Í framhaldinu ræðir hann verk sitt á sýningunni SKÚLPTÚR / SKÚLPTÚR en verkum Styrmis er ekki ætlað að falla í ákveðinn flokk. Hann hefur ýmist verið kenndur við gjörningalist, break dans, rapp / söng, teikningar, skáldverk, skúlptúr eða leikstjórn. Listformin fléttast saman í frásagnir sem einkenna sköpunarverk hans.  Sögurnar þróast úr einu í annað og þannig getur teikning á pappír þróast yfir í músík eða skúlptúr sem verður síðar upphafið að gjörningi.

Aðgangur á safnið gildir á viðburðinn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Sonur Elísu og Elíss fæddur

Sonur Elísu og Elíss fæddur
Fókus
Fyrir 2 dögum

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Bjútífilterar á samfélagsmiðlum orðnir svo lúmskir – „Þetta er ekki raunveruleikinn“

Bjútífilterar á samfélagsmiðlum orðnir svo lúmskir – „Þetta er ekki raunveruleikinn“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Faðir Olgu var einn þekktasti læknamiðill landsins – „Hann vissi allt“

Faðir Olgu var einn þekktasti læknamiðill landsins – „Hann vissi allt“