fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024

Saga borðspilanna

Dægradvöl mannkyns í 5000 ár – „Nýju spilin“ og netvæðingin

Kristinn H. Guðnason
Sunnudaginn 16. júlí 2017 08:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Borðspil hafa fylgt manninum frá upphafi siðmenningar. Elstu borðspil sem fundist hafa, eins og Senet frá Egyptalandi og Backgammon frá Persíu, eru um 5000 ára gömul. Frá Indlandi hinu forna komu spil eins og skák, lúdó og slönguspilið sem er byggt á hindúískri speki um karma. Frá Afríku kom Mancala sem spilað var með fræjum. Á Norðurlöndum spiluðu víkingarnir ýmis taflspil sem byggja á herkænsku.

Elsta spil sem fundist hefur
Senet Elsta spil sem fundist hefur

Hin fornu borðspil eru flest mjög einföld og líkjast sjaldan raunverulegum hlutum en eru ennþá víða spiluð. Í daglegu tali er talað um abstrakt-spil. Skák hefur þróast út í að vera talin íþrótt sem margir hafa orðið heimsfrægir af að spila. Hin fornu spil eiga það aftur á móti sameiginlegt að eiga enga þekkta höfunda.

Fyrsta spilið sem vitað er hver hannaði var A Journey Through Europe eftir Bretann John Jefferys, frá 1759, og merkilegt nokk þá kemur Ísland þar við sögu . Á 19. öld hófst eiginlegur borðspilaiðnaður en spil voru þá aðallega hönnuð fyrir börn. Um miðbik 20. aldar fóru flóknari spil fyrir fullorðna að líta dagsins ljós.

Árið 1933 kom Monopoly fyrst á markað í Bandaríkjunum og er ennþá eitt vinsælasta spil veraldar. Það var þýtt sem Matador hér á landi árið 1939 að danskri fyrirmynd. Í seinni heimstyrjöldinni hannaði breski tónlistarmaðurinn Anthony E. Pratt spilið Cluedo til að stytta fólki stundir í neðanjarðarbyrgjum meðan sprengjuregn Þjóðverja gekk yfir. Franski leikstjórinn og Óskarsverðlaunahafinn Albert Lamorisse hannaði Risk, heimsins vinsælasta herkænskuspil, árið 1957.

Mörg önnur spil sem allir þekkja eins og Mastermind, Scrabble, Trivial Pursuit og Yahtzee komu fram á árunum 1940 til 1980. Stórir borðspilaframleiðendur eins og Milton Bradley, Hasbro og Parker Brothers komu einnig fram á sjónarsviðið á þessu tímabili. Borðspil voru nú orðin viðurkennt tómstundargaman fyrir fullorðið fólk.

Byltingin á eyjunni Catan

„Á einhver leir fyrir kind?“ er setning sem heyrist sjálfsagt oft á mörgum heimilum. Fólk er að spila Landnemana á Catan, spil frá árinu 1995 sem breytti öllu. Hannað af hinum þýska Klaus Teuber sem vann áður við það að búa til hluti til tannlækninga en er orðinn goðsögn innan borðspilabransans. Spilið snýst um að koma sér fyrir á eyjunni Catan og byggja upp veldi sitt hraðar en aðrir leikmenn með því að safna nauðsynjum, skipta við aðra leikmenn og byggja þorp, borgir og vegi. Aðspurður um fyrirmynd að eyjunni Catan segir Teuber:

Hönnuður Catan
Klaus Teuber Hönnuður Catan

Mynd: EPA

„Þegar ég hannaði spilið snemma á tíunda áratugnum sá ég fyrst fyrir mér Ísland, sem var hlýrra á ármiðöldum en það er nú. Það voru birkiskógar á þessari norðlægu eyju þegar landnemarnir komu fyrst, en á stuttum tíma voru skógarnir hoggnir til að byggja hús og skip. Það var lítið um kornrækt, en sauðfé og hross þrifust á þessari hrjóstrugu eldfjallaeyju. Þess vegna voru viðskipti það mikilvægasta fyrir íslenska landnema til að fá málmgrýti, korn og timbur.“

Landnemarnir á Catan er í dag eitt vinsælasta borðspil heims og hefur selst í tugmilljónatali og verið þýtt á yfir 30 tungumál, en mikilvægi þess nær langt út fyrir sölutölur. Spilið er talið eitt helsta gáttarspil (gateway-game) heims, það dregur fólk inn í áhugamálið, sem er spilamennska.

Á síðustu 15-20 árum hefur orðið alger sprenging í hönnun og framleiðslu borðspila. Fjöldinn allur af fyrirtækjum hafa sprottið upp sem framleiða aðallega borðspil fyrir fullorðna. Má þar nefna Asmodee, Days of Wonder, Z-Man Games og Fantasy Flight Games. Hönnunin er orðin betri, sjónrænt gildi þeirra hefur aukist til muna og framboðið hefur stóraukist. Viðbætur eru nánast alltaf framleiddar fyrir vinsælustu spilin sem „heldur lífi“ í þeim. Dæmi eru um að viðbætur séu gerðar við viðbæturnar. Í dag getur fólk valið sér nákvæmlega hvernig spil það vill spila.

Áhugamálið

Flestir hafa gaman að því að spila einhver borðspil þó þeir líti ekki á sig sem spilara (gamers). En áhugafólkið er ákaflega samrýmdur hópur sem hreykir sér að því að kalla sig „lúða“ eða jafnvel „nörda“. Miðstöðin er vefsíðan Boardgamegeek.com þar sem fletta má öllu upp varðandi borðspil, kortaspil og hlutverkaleiki. Lúðar eru ótrúlega duglegir að ræða spilin út í ystu æsar og allt sem tengist þeim. Hægt er að komast í kynni við spilahópa nánast hvar sem er í heiminum og það er bókað að fólk tekur manni opnum örmum.

Ráðstefnur eru haldnar víða um heim eins og GenCon, Origins og SPIEL í Essen sem er nokkurs konar Mekka lúðanna. Á ráðstefnum kynna framleiðendur nýjustu spilin, hægt er að prófa þau og taka þátt í spilamótum í eldri spilum. Jafnvel er í boði að spila við sjálfa hönnuðina. Fyrirlestrar eru haldnir og verðlaun veitt í hinum ýmsu flokkum. Ráðstefnurnar eru misstórar en áætlað er að um 150.000 manns haldi til Essen á hverju ári til að sækja ráðstefnur af þessu tagi.

Verðlaunaafhendingin Spiel des Jahres í Þýskalandi er nokkurs konar Óskars- eða Grammyverðlaunahátíð í heimi áhugamanna um spil. Tilnefningar og verðlaun þar koma hönnuðum og framleiðendum á kortið og spil sem vinna verðlaunin seljast yfirleitt vel í kjölfarið. Meðal spila sem unnið hafa hin eftirsóttu Spiel des Jahres verðlaun má nefna Scotland Yard (1983), Landnemana á Catan (1995), Carcassonne (2001), Ticket to Ride (2004) og Dixit (2010). Þýsku hönnuðirnir Wolfgang Kramer og Klaus Teuber hafa unnið verðlaunin samanlagt níu sinnum.

Iðnaðurinn er ekki drifinn áfram af græðgi en spilin eru mörg hver stór og dýr í framleiðslu. Fyrirtækin eru ekki risasamsteypur heldur í smærra lagi og samkeppnin er ekki fjandsamleg. Ef eitt fyrirtæki framleiðir mjög vinsælt spil græða hin á því líka því að fleira fólk ánetjast áhugamálinu. Flestir hönnuðir starfa einnig á öðrum vettvangi og einungis vinsælustu spilin má finna í stórmörkuðum og leikfangaverslunum.

Flest hinna „nýju spila“ má einungis finna í sérhæfðum verslunum sem yfirleitt selja einnig teiknimyndasögur, vísindaskáldskap og fleira í þeim dúr og svo í vefverslunum. Hér á landi eru tvær verslanir, Nexus og Spilavinir, sem sérhæfa sig í nýrri borðspilum.

Nýta sér tæknina

Sumir héldu að borðspil myndu hreinlega deyja út þegar töluvleikirnir komu fram á sjónarsviðið á níunda og tíunda áratug 20. aldarinnar en það reyndist ekki raunin. Upplifunin af því að spila borðspil snýst að mestu leyti um félagsskapinn á meðan tölvuleikir eru oft spilaðir í þögn jafnvel þó spilað sé við aðra persónu.

Ólíkt mörgum afþreyingargreinum hefur borðspilaiðnaðurinn fallið vel að tölvu-og netvæðingunni. Útgefendur hafa í auknum mæli hannað stafrænar útgáfur af borðspilum sem eiga lítið sameiginlegt með hefðbundnum tölvuleikjum. Þessar útgáfur eru framleiddar til að auka við upplifunina af spilunum sjálfum og til að auglýsa þau. Þeir sem eiga spilin eru líklegri til að kaupa stafrænu útgáfurnar og þeir sem ramba á stafrænu útgáfurnar eru líklegri til þess að kaupa áþreifanlegu spilin.

Spjaldtölvuútgáfa
Monopoly Spjaldtölvuútgáfa

Mynd: EPA

Spjaldtölvu-formið hentar iðnaðinum sérstaklega vel. Auðvelt er að setja upp leik og láta tölvuna ganga milli manna (pass ´n play). Einnig er hægt að spila við leikmenn úti í heimi í gegnum netið eða við gervigreind forritsins. Meðal vinsælustu smáforrita á vefbúð Apple má finna Ticket to Ride, Carcassonne og Landnemana á Catan. Stafrænu útgáfurnar kosta vitaskuld aðeins brot af verði hinna áþreifanlegu, yfirleitt innan við 1000 kr. Auk þess hafa ótal smáforrit verið hönnuð sem aðstoða við spilun á áþreifanlegum spilum, eins og upplýsingabankar, stigahald, teningakastarar o.fl.

Útgefendur borðspila njóta þess einnig að ekki er hægt að hlaða niður eða „stela“ áþreifanlegum spilum. Á meðan útgefendur tónlistar, kvikmynda og bóka hafa átt í vandræðum að selja vöru sína í netvæddum heimi fara sölutölur borðspila hækkandi með hverju árinu. Iðnaðurinn er ennþá lítill í samanburðinum en sífellt fleiri eru að átta sig á hversu ofboðslega gaman það er að spila.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 3 klukkutímum

Besta deild kvenna fer af stað með látum á sunnudag

Besta deild kvenna fer af stað með látum á sunnudag
Fréttir
Fyrir 3 klukkutímum

Dæmd fyrir líkamsárás á hvort annað

Dæmd fyrir líkamsárás á hvort annað
Fréttir
Fyrir 4 klukkutímum

Segir ráðamönnum að skammast sín – „Hversu aumt getur sálartetur þessa ofurlaunafólks verið?“

Segir ráðamönnum að skammast sín – „Hversu aumt getur sálartetur þessa ofurlaunafólks verið?“
Fréttir
Fyrir 4 klukkutímum

Verk og vit sett með pomp og prakt

Verk og vit sett með pomp og prakt
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Leikmaður United ákærður fyrir tvö brot – Mætti fyrir dómara í dag en neitar sök

Leikmaður United ákærður fyrir tvö brot – Mætti fyrir dómara í dag en neitar sök
Pressan
Fyrir 6 klukkutímum

Varpa fram kenningu um hvarf Émile sem gæti kollvarpað rannsókninni

Varpa fram kenningu um hvarf Émile sem gæti kollvarpað rannsókninni
Eyjan
Fyrir 7 klukkutímum

Katrín með forskot á Baldur – Halla Hrund sækir í sig veðrið

Katrín með forskot á Baldur – Halla Hrund sækir í sig veðrið
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Aðstoðarmaður Klopp með spennandi tilboð á borði sínu

Aðstoðarmaður Klopp með spennandi tilboð á borði sínu
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum
Hartman í Val