fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024

Þau hljóta Menningarverðlaun DV 2016

Kristbjörg Kjeld hlýtur heiðursverðlaunin

Kristján Guðjónsson
Miðvikudaginn 15. mars 2017 19:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Menningarverðlaun DV fyrir árið 2016 voru veitt við hátíðlega athöfn í Iðnó í dag, miðvikudaginn 15. mars. Verðlaunin hafa verið veitt árlega frá árinu 1979 fyrir framúrskarandi árangur á menningarsviðinu, í þetta skiptið í 9 flokkum – bókmenntum, fræðum, arkitektúr, hönnun, kvikmyndalist, danslist, leiklist, myndlist og tónlist. Þar að auki afhenti forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson Kristbjörgu Kjeld, leikkonu, heiðursverðlaun DV og Ásrún Magnúsdóttir, danshöfundur, og stelpurnar í dansverkinu Grrrls voru hlutskarpastar í netkosningu til lesendaverðlauna dv.is.

Rithöfundurinn Sjón hlaut verðlaunin í flokki bókmennta fyrir skáldsöguna Ég er sofandi hurð, sem er þriðju hluti þríleiksins CoDex 1962. Hann hefur einmitt hlotið verðlaunin fyrir fyrri tvo hluta þríleiksins, Augu þín sáu mig (árið 1995) og Með titrandi tár (árið 2002). Það er einsdæmi að rithöfundur hafi hlotið verðlaunin fyrir alla hluta eins og sama þríleiksins.

Eftirfarandi einstaklingar og hópar hlutu Menningarverðlaun DV 2016.

Bókmenntir – Sjón fyrir skáldsöguna Ég er sofandi hurð.
Fræði – Guðrún Ingólfsdóttir fyrir fræðiritið Á hverju liggja ekki vorar göfugu kellíngar.
Tónlist – Hildur Guðnadóttir, tónskáld og sellóleikari.
Danslist – Helena Jónsdóttir, fyrir brautryðjandastarf í dansmyndagerð á Íslandi.
Leiklist – Sólveig Guðmundsdóttir, fyrir leik sinn í Illsku og Sóley Rós ræstitæknir.
Kvikmyndir – Kvikmyndahátíðin Stockfish Film Festival.
Myndlist – Hildur Bjarnadóttir, myndlistarkona og textíllistamaður.
Hönnun – Hönnunarfyrirtækið Tulipop.
Arkitektúr – PKdM arkitektar fyrir skrifstofur og verksmiðju Alvogen í Vatnsmýri.
Lesendaverðlaun dv.is – Ásrún Magnúsdóttir, danshöfundur, og stelpurnar í dansverkinu Grrrls
Heiðursverðlaun – Kristbjörg Kjeld, leikkona.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Stöð 2 lækkar verð
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Allir þrír leikmenn klárir fyrir United

Allir þrír leikmenn klárir fyrir United
Eyjan
Fyrir 9 klukkutímum

Trúnaði aflétt af leynilegu minnisblaði um meint spillingarmál – „Hlýtur að teljast vafasamt“

Trúnaði aflétt af leynilegu minnisblaði um meint spillingarmál – „Hlýtur að teljast vafasamt“
Fréttir
Fyrir 9 klukkutímum
Stöð 2 lækkar verð
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Segja Zidane nálægt því að taka að sér óvænt starf

Segja Zidane nálægt því að taka að sér óvænt starf
Eyjan
Fyrir 10 klukkutímum

Ólafur Þ. Harðarson: Kosningarnar nú minna mjög á kosningarnar 1980 – spurningin hvort kjósendur kjósa taktískt

Ólafur Þ. Harðarson: Kosningarnar nú minna mjög á kosningarnar 1980 – spurningin hvort kjósendur kjósa taktískt
Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Segir ráðamönnum að skammast sín – „Hversu aumt getur sálartetur þessa ofurlaunafólks verið?“

Segir ráðamönnum að skammast sín – „Hversu aumt getur sálartetur þessa ofurlaunafólks verið?“
Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Verk og vit sett með pomp og prakt

Verk og vit sett með pomp og prakt
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Nýr þáttur af Íþróttavikunni kominn út – Axel Óskar er gestur

Nýr þáttur af Íþróttavikunni kominn út – Axel Óskar er gestur
Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Baldur um ófrægingarherferð gegn sér: „Þetta hefur engin áhrif á okkur Felix“

Baldur um ófrægingarherferð gegn sér: „Þetta hefur engin áhrif á okkur Felix“