Kvikmyndir, leiklist, dans, tónlist, myndlist, arkitektúr, hönnun, bókmenntir og fræði
Menningarverðlaun DV verða veitt í 39. skipti við hátíðlega athöfn í Iðnó á morgun, miðvikudaginn 15. mars, klukkan 17.00. Boðið verður upp á léttar veitingar og tónlist. 45 verkefni, hópar og einstaklingar sem sköruðu fram úr í menningarlífinu árið 2016 eru tilnefndir til verðlaunanna í níu flokkum; kvikmyndum, leiklist, dansi, tónlist, myndlist, arkitektúr, hönnun, bókmenntum og fræðum, en auk þess veitir forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, sérstök heiðursverðlaun og lesendaverðlaun dv.is verða afhent.
Enn stendur yfir netkosning á dv.is þar sem lesendum gefst tækifæri til að kjósa þá tilnefningu sem þeim líst best á – sú tilnefning sem hlýtur flest atkvæði í netkosningunni sem lýkur á miðnætti hreppir lesendaverðlaun dv.is. Hægt er að skoða allar tilnefningarnar og taka þátt í kosningunni á http://www.dv.is/fbkosning/menningarverdlaun-dv-2016/