Tveggja daga tónlistarveisla í Hörpu í mars 2018
Hinn framsækni og furðulegi bandaríski rappari Danny Brown er meðal þeirra listamanna sem koma fram á tónlistarhátíðinni Sónar Reykjavík 16. og 17. mars á næsta ári. Þetta kemur fram í tilkynningu frá hátíðinni sem birt var í morgun.
Af öðrum erlendum listamönnum sem staðfestir eru á hátíðina má einnig nefna grime-tónlistarkonuna Nadiu Rose frá London, plötusnúðinn Lenu Willikens frá Köln, Bad Gyal sem hefur verið köllluð hin spænska RIhanna, og Jlin sem hefur vakið athygli að undanförnu fyrir tilraunakennda raftónlist sína.
Í tilkynningunni er einnig staðfest að nokkur fjöldi íslenskra listamanna komi fram og ber þar kannski hæst teknótónlistarmaðurinn Bjarki sem hefur verið að vekja mikla athygli utan landssteinana að undanförnu, en hann mun koma fram á öðru af stóru sviðunum í Hörpu. Þá er tilkynnt að raftónlistarkonan og pródúserinn Eva808 sem er búsett í Svíþjóð muni loks stíga á stokk á tónlistarhátíð á Íslandi. Aðrir íslenskir listamenn sem staðfest er að muni koma fram eru Högni, Volruptus, Vök, JóiPé og Króli og svo plötusnúðurinn Yamaho sem mun þeyta skífum ásamt breska plötusnúðinum Cassy.
Hér fyrir neðan má heyra lög með nokkrum af þeim listamönnum sem koma fram á Sónar Reykjavík 2018.