Leikfélag Hveragerðis setur upp The Full Monty – „Sá elsti þarf göngugrind til að komast úr fötunum,“ segir leikstjórinn.
Garðyrkjubændur í Hveragerði eru í kröggum og fúlir vegna þess rafmagnsverðið er allt of hátt á meðan þeir glíma við stöðugt harðari samkeppni við innflutt grænmeti. Bændurnir sjá sér þann kost vænstan að drýgja tekjurnar, en hvernig? Jú með því að halda konukvöld þar sem þeir munu fækka fötum – fara alla leið.
Einhvern veginn þannig er söguþráður leikritsins Naktir í náttúrunni, staðfærslu á hinni feikivinsælu bresku grínmynd The Full Monty eftir Terrance McNally, sem Leikfélag Hveragerðis setur upp í lok janúar. „Í rauninni fjallar leikritið um nákvæmlega það sem er að fara að gerast núna um helgina: garðyrkjubændur eru að fara að fækka fötum!“ segir Jón Gunnar Þórðarson, leikstjóri sýningarinnar.
Leikararnir eru á öllum aldri – alveg upp í áttrætt. Sá elsti þarf göngugrind til að komast úr fötunum.
Jón Gunnar segir æfingarnar ganga vel, en átján áhugaleikarar á öllum aldri koma að sýningunni auk fjölda annarra sem aðstoða við sýninguna. „Það er rosalega mikið hlegið og verður eflaust enn meira hlegið þegar áhorfendurnir koma. Leikararnir eru á öllum aldri – alveg upp í áttrætt. Sá elsti þarf göngugrind til að komast úr fötunum.“
Leikstjórinn segir það ekki hafa verið sérlega erfitt að á menn til að afklæðast, en áður en æfingar hófust gaf leikfélagið út dagatal með sérlega krassandi nektarmyndum af leikurunum í gróðurhúsi í bænum. „Þetta var í fyrsta skipti sem þeir hittust og þeir fóru bara strax úr fötunum. Þeir þekktust ekki allir almennilega, en myndirnar voru teknar og þá gátu menn ekki hætt við,“ segir Jón Gunnar og bætir við að salan á dagatalinu hafi gengið mjög vel hingað til: „Það fæst á bensínstöðvum bæjarins – en það er líka hægt að hafa samband beint við okkur.“
Jón Gunnar hefur áður leikstýrt sýningu byggðri á The Full Monty í Hörgárdal árið 2011 og segir sýninguna þá hafa slegið aðsóknarmet – enda hafi ófá kvenfélög gert sér ferð norður á land til að sjá berrassaða kúabændurna. „Í kvikmyndinni eru þetta járnverkamenn þegar járniðanðurinn er í krísu, en það er alltaf hægt að laga söguna að samfélaginu á hverjum stað. Í þetta skiptið fléttast búvörusamningarnir, panama-skjölin og kosningar inn í leikritið. Svo dansa þeir við þá tónlist sem er vinsæl á Íslandi í dag. Þeir dansa til dæmis við lög með Ný Dönsk og Sigur Rós. Það er kannski ekki mest kynæsandi tónlistin, en þeir gera sitt besta til að fækka fötum við hana!“
Naktir í náttúrunni verður sýnt um helgina í Leikhúsinu Austurmörk 23 í Hveragerði og hægt er að panta miða í síma 863-8522.