Músíktilraunasveitir og fleiri á Iceland Airwaves í nóvember
Tilkynnt hefur verið um 22 listamenn í viðbót sem munu koma fram á tónlitarhátíðinni Iceland Airwaves 2017 sem fer fram í byrjun nóvember. Í myndbandi sem forsvarsmenn hátíðarinnar sendu frá sér í dag kemur meðal annars fram að þrjár verðlaunasveitir Músíktilrauna Between Mountains, Phlegm og Omotrack muni koma fram.
Aðrir listamenn sem tilkynnt er að komi fram á hátíðinni eru erlendu listamennirnir Stefflon Don (Bre), Aldous Harding (NS), Jo Goes Hunting (Hol) Ama Lou (Bre), Mahalia (Bre), Káryyn (BNA/Sýr) og ГШ/Glintshake (Rús), auk íslensku listamannanna Gunnar Jónsson Collider, Halldór Eldjárn, Exos, Gróa, Kontinuum, Korter í Flog, Kælan Mikla, Ljósvaki, Milkywhale, Omotrack, Phlegm. Pink Street Boys, Sycamore Tree og Guðrún Ýr.
Áður hefur verið tilkynnt að Fleet Foxes, Billy Bragg, Arab Strap, Emiliíana Torrini, Ásgeir og fjölmargir fleiri komi fram á hátíðinni sem fer fram 1. til 5. nóvember næstkomandi.