Aðdáendur ljóða Þorsteins frá Hamri geta glaðst því von er á nýrri ljóðabók hans fyrir þessi jól. Einnig er von á nýrri ljóðabók eftir hið góða skáld Sigurð Pálsson. Hallgrímur Helgason er líka með ljóðabók, en hann hefur gert þó nokkuð af því að yrkja. Einnig hefur frést að von sé á fyrstu ljóðabók Guðmundar Andra Thorssonar. Fleiri ljóðabækur verða alveg örugglega markaðnum og ljóðaunnendur ættu að verða alsælir.