Vigdís Jakobsdóttir tekur við af Hönnu Styrmisdóttur
Vigdís Jakobsdóttir hefur verið ráðin listrænn stjórnandi Listahátíðar í Reykjavík til fjögurra ára, hún tekur við af Hönnu Styrmisdóttur sem hefur sóttist ekki eftir endurráðningu. Það var Capacent sem hafði umsjón með ráðningarferlinu en sextán manns sóttu um starfið.
Vigdís er með BA gráðu í leikstjórn og leiklistarfræðum frá University of Kent at Canterbury, diplóma í kennslufræði fyrir háskólakennara frá Háskóla Íslands og hefur aflað sér aukinnar menntunar á sviði leiðtogafræða og menningarstjórnunar. Hún starfaði um árabil sem deildarstjóri fræðsludeildar hjá Þjóðleikhúsinu og sem listrænn stjórnandi Þjóðleiks, leiklistarhátíðar ungs fólks á landsbyggðinni. Vigdís átti frumkvæði að og var listrænn stjórnandi UNGA – alþjóðlegrar sviðslistahátíðar ASSITEJ á Íslandi. Undanfarin ár hefur hún verið fagstjóri við Listaháskóla Íslands og tekið virkan þátt í stefnumótun innan skólans. Hún hefur auk þess starfað mikið á alþjóðavettvangi, meðal annars sem varaforseti ASSITEJ International.
Vigdís hefur störf þann 1. október næstkomandi og byrjar þá undirbúningur fyrir næstu Listahátíð í Reykjavík sem verður haldin eftir tvö ár, árið 2018.