Ögrandi götulistaverk veldur deilum í Ástralíu
Umdeildu götulistaverki af Hillary Clinton á vegg í Maribyrnong, rétt fyrir utan Melbourne í Ástralíu, hefur verið breytt eftir kvartanir frá borgurum og hótanir frá bæjarráði.
Myndin, sem er af bandaríska forsetaframbjóðandanum í efnislitlum sundbol, er máluð á hliðarvegg hjólabrettabúðar af ástralska götulistamanninum Lushsux. Eftir að verkið var sett upp bárust bæjarráði Maribyrnong kvartanir frá vegfarendum og í kjölfarið sendi ráðið frá sér hótun um að sekta eiganda veggjarins. Ástæðan var ekki að verkið þætti móðgun við Clinton heldur var það sagt fara yfir velsæmismörk að sýna hálfnakta konu á borgarvegg og það sagt í andstöðu við hugmyndir bæjarbúa um jafnrétti kynjanna.
Í stað þess að taka verkið niður brá listamaðurinn á það ráð að mála á forsetaframbjóðandann niqab, klæðnað sem hylur allan líkamann og andlitið fyrir utan augu, en slíkur klæðnaður er notaður af litlum hluta kvenna sem aðhyllast íslam. Fyrir neðan verkið skrifaði hann: „Ef þú móðgast við að sjá þessa múslimakonu ert þú þröngsýnn, rasisti, karlremba og haldinn hræðslu gagnvart íslam.“
Listamanninum er greinilega umhugað um samspil bandarískra stjórnmála og nektar enda hefur hann einnig málað dónamyndir af Donald og Melaniu Trump á veggi í Ástralíu.