Fylgir satanískri sveimplötu eftir með píanóverkum
Í kvöld kemur tónlistarkonan Kristín Anna Valtýsdóttir fram í listarýminu Mengi og leikur lög af væntanlegri plötu sem inniheldur hennar eigin píanóverk frá undanförnum áratug.
Kristín Anna vakti fyrst athygli í kringum aldamót þegar hún sigraði heiminn með rafpoppsveitinni Múm, síðan þá hefur hún verið meðlimur í Stórsveit Nix Noltes, spilað með Mice parade, Slowblow, Animal Collective og getið sér nafn sem sólólistakona undir nafninu Kría Brekkan – svo eitthvað sé nefnt.
Undir lok síðasta árs kom út platan Howl, 80 mínútna „satanískt feminískt sveimverk“ samið og tekið upp í Mojave-eyðimörkinni í Kaliforníu. Með síendurteknum „raddlúppum“ skapar hún þar dáleiðandi furðuheim innblásinn af eyðimerkurdvölinni.
Plata með píanóverkum Kristínar frá síðustu árum er nú í smíðum og mun vera gefin út, eins og Howl, hjá Bel Air Glamour Records glænýju útgáfufyrirtæki í listrænni umsjón Ragnars Kjartanssonar.
„Þetta er mjög mikil tónlist, tónlist sem hef ég verið að semja í einhver 12 ár. Ég hef verið að taka þetta upp með Kjartani Sveinssyni, tónskáldi og fyrrum meðlim Sigur Rósar undanfarið eitt og hálft ár, með hléum og með fram öðrum verkefnum. En ég sé fram á að þetta sé að fara að klárast,“ segir Kristín Anna í samtali við DV, en ítarlegt viðtal birtist í helgarblaði DV á föstudag.
Tónleikarnir fara fram í Mengi, Óðinsgötu 2, og opnar húsið klukkan 20.00 en tónleikar hefjast klukkutíma síðar. Miðaverð er 2000 krónur.