Best þýdda glæpasagan verður kunngerð á Iceland Noir í nóvember
Fimm bækur hafa verið tilnefndar til Ísnálarinnar, verðlauna bandalags þýðenda og túlka fyrir bestu þýddu glæpasöguna á íslensku. Verðlaunin verða afhent á Iceland Noir glæpasagnahátíðinni sem fer fram í Reykjavík í nóvember.
Þetta er í þriðja sinn sem verðlaunin eru veitt, en tilnefningarnar eru ávallt kynntar á afmælisdegi glæpasagnahöfundarins Raymonds Chandlers.
Þær bækur sem eru tilnefndar til verðlaunanna í ár eru:
Hin myrku djúp eftir Ann Cleeves; þýðandi Þórdís Bachmann. Útg. Ugla.
Konan í myrkrinu eftir Marion Pauw; þýðandi Ragna Sigurðardóttir. Útg. Veröld.
Kólibrímorðin eftir Kati Hiekkapelto; þýðandi Sigurður Karlsson. Útg. Skrudda.
Meira blóð eftir Jo Nesbö; þýðandi Bjarni Gunnarsson. Útg. JPV.
Sjöunda barnið eftir Erik Valeur; þýðandi Eiríkur Brynjólfsson. Útg. Draumsýn.
Dómnefnd á ár skipuðu Katrín Jakobsdóttir, Kolbrún Bergþórsdóttir, Magnea J. Matthíasdóttir, Quentin Bates og Ragnar Jónasson.