Byggðasafn Skagfirðinga hlaut í gær Íslensku safnaverðlaunin er þau voru afhent í 10. sinn við hátíðlega athöfn á Bessastöðum. Í rökstuðningi dómnefndar kemur fram að starfsemi safnsins sé metnaðarfull og yfirgripsmikil, þar sem hlúð er að hverjum þætti safnastarfsins á faglegan hátt. Verðlaunaféð nemur einni milljón króna.
Það var Sigríður Sigurðardóttir, safnstjóri, sem tók við verðlaununum frá hr. Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Íslands. Verðlaunin eru mikill heiður fyrir safnið og starfsfólk þess og viðurkenning á því metnaðarfulla starfi sem þar er unnið.
Íslensku safnaverðlaunin eru veitt annað hvert ár og er ætlað að vekja athygli á því sem vel er gert á íslenskum söfnum. Þeim er jafnframt ætlað að efla faglegan metnað og vera hvatning til að kynna menningu þjóðarinnar á framsækinn og áhugaverðan hátt. Verðlaunin eru veitt einu safni sem þykir hafa skarað fram úr og vera til eftirbreytni.
Höfuðstöðvar Byggðasafns Skagfirðinga og aðal sýning þess eru í Glaumbæ, en skrifstofa Fornleifadeildar, aðstaða til rannsókna og megin geymsla safnsins er í Minjahúsinu á Sauðárkróki. Þar er einnig önnur fastasýninga safnsins og sérsýningar.