Kynning í Opna Háskólanum í reykjavík á föstudaginn
Næstkomandi föstudag munu höfundar bókarinnar Crowdocracy: Th End of Politics, þeir Dr. Alan Watkins og Iman Stratenus kynna hugmynd bókarinnar í Opna Háskólanum í Reykjavík á milli klukkan 13:00 og 14:30.
Bókin kom út á heimsvísu í mars síðastliðnum. Í tilkynningu frá skipuleggjendum segir að í bókinni hafi verið sett fram sú „hugmynd að nýrri leið þar sem samfélög taka beinan þátt í að stýra eigin hagsmunum með aðstoð tækninnar.“
Að sögn skipuleggjenda er bókin skyldulesning „fyrir alla þá sem hafa áhuga á þróun og stjórnun hópa eða samfélaga.“
Þeir sem hafa áhuga á að fræðast nánar um hugmyndafræðina eða höfundana geta kynnt sér málið á www.crowd.ngo