Tónleikaskrá Toronto-sinfóníunnar vekur athygli
Tónleikaskrá sinfóníuhljómsveitarinnar í Toronto í Kanada hefur vakið nokkra athygli að undanförnu eftir að slagverksleikari sveitarinnar setti mynd af henni á Twitter fyrir skemmstu.
Í stað hins hefðbundna upplýsingatexta sem kynnir tónsmiðinn, verkið og sögu þess hefur sinfónían notað litrík myndtákn og auðskiljanlegar nótur sem minna helst á morskóða til að leiðbeina gestum í gegnum tónverkin. Leiðarvísirinn, sem hefur fylgt tónleikum sveitarinnar frá því í fyrra, á að hjálpa fólki betur að skilja hvað það er að heyra og magna þannig upplifunina af tónlistinni.
Áheyrendur, hvort sem þeir lesa nótur eða ekki, geta fylgst með framvindu verksins á blaðinu, séð í hvaða tóntegund hver kafli er, hvaða hljóðfæri eru í aðalhlutverki og greint helstu stef og melódíur. Meðal verka sem hafa verið teiknuð upp í kerfinu eru fjórða sinfónía Brahms, 41. sinfónía Mozarts, fjórði píanókonsert og fimmta sinfónía Beethovens og verkið La Mer eftir Debussy.