Fagráð velur úr 29 tillögum að framlagi til Feneyjatvíæringsins 2017
Egill Sæbjörnsson, Gjörningaklúbburinn og Margrét Blöndal eiga möguleika á að verða valin til þátttöku fyrir hönd Íslands á 57. Feneyjatvíæringnum sem fer fram á næsta ári. Þau hafa verið valin til að vinna að nánari útfærslu á tillögum sínum um framlag til tvíæringsins í samstarfi við sýningarstjóra.
29 tillögur frá listamönnum og sýningarstjórum bárust Kynningarmiðstöð íslenskrar myndlistar í vor, en þetta er í annað skipti sem kallað var eftir tillögum frá listamönnunum og sýningarstjórunum sjálfum. Fagráð fór í kjölfarið yfir allar tillögurnar og hefur nú valið þrjá umsækjendur sem munu á næstu sex vikum vinna að nánari útfærslu verkefnanna fyrir lokavalið sem verður kynnt í byrjun júní. Þau munu fá 250 þúsund krónur hvert til að vinna áfram að verkefninu og koma því á framkvæmdastig sem mun svo hefjast um leið og lokaval hefur átt sér stað.
Egill Sæbjörnsson mun vinna með sýningarstjóranum Stephanie Böttcher að tillögu sinni, Gjörningaklúbburinn, sem er skipaður Eirúnu Sigurðardóttur, Jóní Jónsdóttur og Sigrúnu Hrólfsdóttur, vinnur með sýningarstjórunum Nadim Samman og Önju Henckel, þá mun Margrét Blöndal vinna með sýningarstjóranum Alfredo Cramerotti.
Fagráð KÍM sem valdi tillögurnar er skipað Björgu Stefánsdóttur, framkvæmdastjóra KÍM, Hlyni Hallssyni, safnstjóra Listasafnsins á Akureyri, og Sirru Sigrúnu Sigurðardóttur listamanni. Gestir nefndarinnar voru Aðalheiður Guðmundsdóttir, listheimspekingur og fagstjóri fræðigreina í myndlistadeild Listaháskóla Íslands, og Ólafur Ólafsson myndlistarmaður.