fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024

Sigrún Inga ráðin forseti myndlistardeildar LHÍ

Tekur við af Kristjáni Steingrími Jónssyni

Kristján Guðjónsson
Þriðjudaginn 9. febrúar 2016 16:08

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í síðustu viku var Sigrún Inga Hrólfsdóttir, myndlistarmaður, ráðin nýr deildarforseti myndlistardeildar Listaháskóla Íslands. Sigrún var valin úr hópi sjö umsækjenda um starfið en hún tekur við af Kristjáni Steingrími Jónssyni sem hefur sinnt starfinu frá stofnun skólans árið 1999. Deildarforseti fer með yfirstjórn deildarinnar, stýrir akademísku starfi hennar og ber ábyrgð á rekstri, auk þess að sitja í framkvæmdaráði skólans.

Sigrún Inga Hrólfsdóttir er fædd árið 1973, hún stundaði myndlistarnám á listasviði Fjölbrautaskólans í Breiðholti frá 1990-93, við Myndlista- og handíðaskóla Íslands 1993 – 96 og stundaði mastersnám við Pratt Institute í New York frá 1996 – 97. Hún hefur einnig numið listfræði og heimspeki við Háskóla Íslands.

Í list sinni hefur Sigrún unnið í ýmsa miðla, teikningu, vídeó og innsetningar en hefur á undanförnum árum snúið sér í auknum mæli að málverkinu. Sigrún er ein af stofnendum Gjörningaklúbbsins / Icelandic Love Corporation sem hefur verið starfandi í 20 ár en verk klúbbsins hafa verið sýnd um allan heim og eru í eigu helstu safna á Íslandi og fjölmargra erlendra opinberra safna

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

De Bruyne setti met sem hann hefði heldur viljað sleppa í gær

De Bruyne setti met sem hann hefði heldur viljað sleppa í gær
Fókus
Fyrir 11 klukkutímum

Er fyrsta vara lífsstílsmerkis Markle algjört flopp? – Sultukrukkan skilar sér ekki á samfélagsmiðla

Er fyrsta vara lífsstílsmerkis Markle algjört flopp? – Sultukrukkan skilar sér ekki á samfélagsmiðla
Fókus
Fyrir 13 klukkutímum

Styttist í barnamenningarhátíð í Reykjavík – Vegleg dagskrá og börnin í aðalhlutverki

Styttist í barnamenningarhátíð í Reykjavík – Vegleg dagskrá og börnin í aðalhlutverki
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Upptaka af lýsandanum fer eins og eldur í sinu – Hlustaðu á hvað hann gerði í beinni

Upptaka af lýsandanum fer eins og eldur í sinu – Hlustaðu á hvað hann gerði í beinni
Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Kíghósti greinist hjá nokkrum ótengdum einstaklingum á höfuðborgarsvæðinu

Kíghósti greinist hjá nokkrum ótengdum einstaklingum á höfuðborgarsvæðinu
Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Píratar vilja Útlendingastofnun feiga

Píratar vilja Útlendingastofnun feiga
Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

Kostar sitt að kúka í Lystigarðinum – Akureyrarbær tvöfaldar verðmiðann

Kostar sitt að kúka í Lystigarðinum – Akureyrarbær tvöfaldar verðmiðann
Eyjan
Fyrir 15 klukkutímum

Maskína: Alvarleg staða hjá 70 prósent þjóðarinnar – verðbólga og vextir vandinn

Maskína: Alvarleg staða hjá 70 prósent þjóðarinnar – verðbólga og vextir vandinn