Þrjár tillögur verða valdar til nánari útfærslu
Kynningarmiðstöð íslenskrar myndlistar (KÍM) kallar í annað sinn eftir tillögum að framlagi Íslands til Feneyjatvíæringsins 2017.
Yfirleitt hefur fagráð valið að eigin frumkvæði listamann og sýningarstjóra sem undirbúa skálann, en fyrir árið 2015 var í fyrsta skipti tekið upp á því að velja úr innsendum tillögum.
Í fréttatilkynningu frá KÍM kemur fram að sérstakur vinnuhópur hafi farið yfir valferlið og endurmetið það með hliðsjón af því hvernig aðrar þjóðir hafa verið að þróa það undanfarin ár.
Niðurstaðan er að valferlið verður í tveimur þrepum í þetta skiptið. Fyrst verða þrjár tillögur valdar af fagráði KÍM og tveimur gestum til nánari útfærslu. Frestur til að skila inn tillögu er til 1. apríl en stefnt er á að tilkynna um verðlaunatillögurnar þrjár þann 22. apríl. Þeim umsækjendum sem verður boðið að vinna tillögur sínar áfram verður úthlutað 250 þúsund krónum til að vinna að útfærslu tillögunnar.
Í júní verður svo tilkynnt um hver af tillögunum þremur verður framlag Íslands til 57. alþjóðlega myndlistartvíæringsins í Feneyjum 2017.