VARGÖLD er teiknuð saga (e. graphic novel) ætluð fólki 15 ára og eldri. Sagan fjallar um norræna goðafræði á eins heildstæðan hátt og höfundum er auðið. Unnið er út frá þeim frumheimildum sem liggja fyrir í fornritunum og reynt er að halda eins mikilli tryggð við þær frásagnir og mögulegt er auk þess sem skapaðar persónur eru notaðar til aðstoðar.
Ætlunin er að segja alla sögu goðafræðinnar frá byrjun til endaloka og mun það rit spanna 6 bækur. Fyrsta bókin kemur út fyrir jólin 2016 á íslensku og ensku. Hver bók er 60 síður og hefur mikilli vinnu verið varið í að gera söguna eins vandaða og framast er unnt.
Bókin Vargöld var á fimmtudaginn tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna í flokki barna- og ungmennabóka.
Jón Páll Halldórsson teiknar en hann hefur starfað við ýmsa hönnun og teikningu. Þar á meðal sem einn af upprunalegu útlits hönnuðunum hjá CCP við EVE online tölvuleikinn, þar sem hann sá um hönnun og útlit persóna. Einnig hjá Latabæ sem yfirhönnuður um árabil. Þekktastur er hann þó sem einn lengst starfandi húðflúrlistamaður Íslands, en við það starfar hann nú í Barcelona á Spáni.
Þórhallur Arnórsson skrifar og letrar. Hann hefur lengst af fengist við skrif og hugmyndavinnu sem sköpunarstjóri á auglýsingastofum. Þá starfaði hann um árabil sem Vörumerkisstjóri Latabæjar en nýverið var hann búsettur í Berlín starfandi við markaðssetningu á tölvuleikjum fyrir samfélagsmiðla.