Amiina, Alvia Islandia, GKR, Gyða Valtýsdóttir, Kælan mikla og Páll Ivan frá Eiðum
Rétt í þessu var tilkynnt hvaða sex plötur hljóta Kraumsverðlaunin 2016, en það eru árleg plötuverðlaun tónlistarsjóðsins Kraums, en verðlaunaafhendingin fer fram á skemmtistaðnum Húrra í miðborg Reykjavíkur.
Verðlaunaplöturnar í ár eru
Bubblegum Bitch með Alvia Islandia,
Fantomas með hljómsveitinni Amiina,
GKR með GKR,
Epicycle með Gyðu Valtýsdóttur,
Kælan mikla með Kælunni miklu, og
This is my shit með Páli Ívani frá Eiðum.
Þetta er í níunda skipti sem tónlistarsjóðurinn Kraumur afhendir verðlaunin, en þeim er ætlað að kynna og styðja við útgáfustarfsemi íslenskra tónlistarmanna og hljómsveita með því að verðlauna og vekja sérstaka athygli á því sem er nýtt og spennandi – og þeim verkum sem þykja skara fram úr í gæðum, metnaði og frumleika. Allar íslenskar plötur sem komið hafa út á árinu eiga möguleika á að hreppa Kraumsverðlaunin. Bæði plötur sem eru gefnar út á geisladisk og vínyl, sem og útgáfur á netinu.
Dómnefnd verðlaunanna hlustaði á rúmlega 200 hljómplötur, valdi 25 plötur á svokallaðan úrvalslista Kraums, og valdi því næst 6 plötur sem hljóta verðlaunin. Dómnefndin í ár er skipuð eftirfarandi aðilum: Árni Matthíasson (formaður), Andrea Jónsdóttir, Anna Ásthildur Thorsteinsson, Alexandra Kjeld, Arnar Eggert Thoroddsen, Benedikt Reynisson, Berglind Sunna Stefánsdóttir, Heiða Eiríksdóttir, Helga Þórey Jónsdóttir, Hildur Maral Hamíðsdóttir, Jóhann Ágúst Jóhannsson, Tanya Pollock, Trausti Júlíusson og Óli Dóri.