„Við erum rokkhundar inn við beinið“
„Þessu átti enginn von á og allra síst ég sjálfur. En við félagarnir, Bjössi Thor, Gunnar Þórðarson, Jón Rafnsson og Fúsi Óttars ætlum að halda rafmagnaða tónleika í orðsins fyllstu merkingu á Cafe Rosenberg föstudagskvöldið 16. desember. Við erum rokkhundar inn við beinið og ætlum að sýna það og sanna. Guitar Islancio ætlar að bjóða upp á rafmagnað rokk, kraftmikinn blús og hvað eina á tónleikum sem verður talað um næstu árin.“
Þetta segir Björn Thoroddsen, forsprakki gítarsveitarinnar Guitar Islancio sem þekktust er fyrir fágaðan og órafmagnaðan gítarleik frábærra tónlistarmanna. Allir vita að hljómsveitina skipa framúrskarandi hljóðfæraleikarar en óneitanlega verður forvitnilegt að sjá þessa mögnuðu spilara í rokkgírnum.
Tónleikarnir á Cafe Rosenberg við Klapparstíg hefjast kl. 22 á föstudagskvöldið. Það er óhætt að lofa dúndurstemningu.