Settu sigurvegarann á forsíðu áður en verðlaunin voru afhent
Norska dagblaðið Dagavisen virðist hafa ljóstrað upp sigurvegara bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs í morgun, en verðlaunaafhendingin fer ekki fram fyrr en í kvöld. Á forsíðu Dagavisen er sigurvegarinn sagður vera sænska ljóðskáldið og rithöfundurinn Katarina Frostenson, en hún var tilnefnd fyrir ljóðabókina Sånger och formler sem kom út í fyrra hjá Wahlström & Widstrand.
Louise Hagemann, upplýsingafullrúi Norðurlandaráðsins, segist ekki skilja hvaðan blaðið hefur fengið upplýsingarnar. „Við skiljum ekki hvernig þetta hefur skeð. Sigurvegarinn verður ekki tilkynntur fyrr en í kvöld!“ segir hún í samtali við norska ríkissjónvarpið NRK.
Afsökunarbeiðni hefur birst á vefsíðu hins bráðláta dagblaðs en Mode Steinkjer, menningarritstjóri Dagavisen, er einnig forviða: „Það er ekki alveg ljóst hvað gerðist, við erum að skoða það núna,“ segir hann.
Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðsins verða afhent í Kaupmannahöfn í kvöld klukkan 6 á íslenskum tíma, en Guðbergur Bergsson og Elísabet Jökulsdóttir eru tilnefnd fyrir hönd Íslands.
Hinn meinti sigurvegari, Katarina Frostenson, er fædd árið 1953 og búsett í Stokkhólmi. Hún er ljóðskáld, rithöfundur, leikskáld og þýðandi. Hún á einnig sæti í Sænsku akademíunni sem velur nóbelsverðlaunahafann í bókmenntum árlega.