Kafli í bókinni Transglobal Sounds: Music, youth and Migration um hljómsveitina
Fræðigrein um íslensku hljómsveitina Retro Stefson hefur verið gefin út sem kafli í bókinni Transglobal Sounds: Music, youth and Migration á vegum Bloomsbury bókaútgáfunnar.
Kaflinn sem nefnist „More than pets of multiculturalism“: Diasporic hybridity in Icelandic popular music – the case of Retro Stefson er eftir Gest Guðmundsson, félagsfræðing, og Arnar Eggert Thoroddsen, dægurtónlistarfræðing.
„Gestur hafði farið á ráðstefnu í Portúgal og hitti þar tvo fræðimenn sem voru að safna saman efni í þessa bók. Þarna sem er verið að fjalla um hvernig menning ferðast á milli heimshluta í dag. Honum datt í hug að við gætum skrifað um Retro Stefson út frá slíkum kenningum,“ útskýrir Arnar Eggert, annar höfunda greinarinnar.
„Við vorum aðallega að skoða hvernig bræðurnir [Unnsteinn Manuel og Logi Pedro] í Retro Stefson hafa unnið með sína arfleifð, en þeir eiga rætur að rekja til Angóla. Þeir hafa ekki unnið neitt mjög glannalega með þessar rætur en það var helst á Kimbabwe sem þeir voru að vinna frekar sterkt með þetta. Við reyndum líka að skoða sögulega hér á Íslandi tónlist frá fólki sem á rætur að rekja til annarra heimshluta, en Ísland er bara svo ótrúlega hvítt land, svo þetta eru allt bara einsdæmi í rauninni. Það hefur auðvitað aldrei orðið til nein sena sem byggir á fjölmenningu eins og til að mynda í Bristol í Englandi,“ segir Arnar Eggert.
Fyrir áhugasama hefur bókasafn Háskóla Íslands í Stakkahlíð pantað eintak af bókinni (samkvæmt Leiti.is) en annars getur verið hægara sagt en gert að nálgast greinina. „Það er auðvitað hægt að panta bókina í gegnum Bloomsbury en ég held að hún sé rándýr!“ segir Arnar Eggert.