Hjónin við hliðina er býsna snjöll glæpasaga og alveg örugglega með þeim allra bestu sem eru á markaðnum nú um stundir. Anne og Marco fara í matarboð til nágrannahjónanna og skilja kornunga dóttur sína eftir. Það hefur afdrifaríkar afleiðingar og gjörbreytir lífi þeirra.
Höfundurinn Shari Lapena sýnir mikið hugvit og kemur lesandanum stöðugt á óvart. Það eru miklar vendingar í þessari sögu og það gerir hana einmitt afar skemmtilega aflestrar. Smám saman kemur í ljóst að allar aðalpersónur bókarinnar hafa eitthvað að fela og þeim er ekki treystandi. Hver afhjúpunin rekur aðra og lesandanum er sífellt komið á óvart. Persónusköpun er prýðileg, sérstaklega er móðirin Anne minnisstæð persóna.
Bókin er spennandi og heldur lesandanum sannarlega við efnið. Glæpasagnaunnendur ættu beinlínis að ljóma af gleði við lesturinn. Það eru einmitt svona bækur sem þeir vilja lesa. Bækur sem eru vel skrifaðar, spennandi og fullar af óvæntum atvikum. Það eina sem hægt er að setja spurningarmerki við er endirinn. Hann er vissulega sjokkerandi en það hefði mátt vinna hann betur, auk þess sem ekki er víst að allir lesendur verði sáttir við hann. Lágstemmdari endir hefði jafnvel átt betur við.
Nú bíður maður bara eftir því að frétta að Hollywood hafi keypt kvikmyndaréttinn. Sagan beinlínis æpir á það að verða kvikmynduð.