fbpx
Fimmtudagur 18.apríl 2024

Er stjórnarskráin ljóð eða prósi?

Rætt um stjórnarskrár frá ýmsum hliðum á alþjóðlegri ráðstefnu í HR á fimmtudag

Kristján Guðjónsson
Miðvikudaginn 19. október 2016 22:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Árið 2008 var frumflutt tónverkið Stjórnarskrá lýðveldisins Íslands, en myndlistartvíeykið Libia Castro og Ólafur Ólafsson höfðu farið þess á leit við Karólínu Eiríksdóttur tónskáld að hún semdi tónverk þar sem sungnar væru allar 81 grein stjórnarskrárinnar. Með því sneru þau lagalegum grunni samfélagsins, stjórnarskránni, yfir á huglægt form lista og gáfu fólki þar með kost á að meta þennan lagagrunn út frá algjörlega nýju sjónarhorni.

Það mætti segja að svipaðar hugmyndir séu til grundvallar alþjóðlegri lýðræðisráðstefnu sem fer fram í Háskólanum í Reykjavík á fimmtudag, en þar er yfirskriftin: „Stjórnarskrá: ljóð eða prósaverk?“

Sjö erlendir fræðimenn ræða um stjórnarskrárhugmyndina í ýmsu óvenjulegu og óvæntu samhengi og velta því þar með fyrir sér hvaðan stjórnarskrár fái lögmæti sitt. Meðal umfjöllunarefna er reynsla íbúa í Kaliforníuríki Bandaríkjanna af stjórnarskrárgerð, stjórnarskrárgerð í stafrænum heimi og stjórnarskrár út frá sjónarhóli í anarkisma.

Eftir að fyrirlestrum lýkur verða opnar umræður með öllum fyrirlesurunum og áhorfendum. Ráðstefnan hefst klukkan 14.00 og stendur í þrjá tíma, hún er öllum opin.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 4 klukkutímum

Siggi stormur óvenju bjartsýnn varðandi sumarið – „Ég er eiginlega í sjöunda himni yfir þessu”

Siggi stormur óvenju bjartsýnn varðandi sumarið – „Ég er eiginlega í sjöunda himni yfir þessu”
433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Ógeðslegt athæfi – Pissaði í glas og skvetti á aðra áhorfendur

Ógeðslegt athæfi – Pissaði í glas og skvetti á aðra áhorfendur
Fréttir
Fyrir 5 klukkutímum

Ofbeldismenn herja á starfsfólk Héraðssaksóknara

Ofbeldismenn herja á starfsfólk Héraðssaksóknara
Pressan
Fyrir 6 klukkutímum

Leikfimiskennari sakaður um að taka nektarmyndir af yfir 100 stúlkum

Leikfimiskennari sakaður um að taka nektarmyndir af yfir 100 stúlkum
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Setur glæsilegt hús sitt á sölu – Vill fá 800 milljónir fyrir það

Setur glæsilegt hús sitt á sölu – Vill fá 800 milljónir fyrir það
Pressan
Fyrir 7 klukkutímum

Varpa sprengju inn í Gilgo-morðmálið – Er lögreglan að fela eitthvað ?

Varpa sprengju inn í Gilgo-morðmálið – Er lögreglan að fela eitthvað ?
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Miklar breytingar á enska bikarnum um næstu helgi – Ekki spilað í deildinni um sömu helgi

Miklar breytingar á enska bikarnum um næstu helgi – Ekki spilað í deildinni um sömu helgi
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Eiginkona Gundogan blandar sér í stríðið í klefanum hjá Barcelona

Eiginkona Gundogan blandar sér í stríðið í klefanum hjá Barcelona