Miðvikudaginn 8. ágúst klukkan 17 opna fjórar sýningar í Ráðhúsi Reykjavíkur sem eiga það allar sameiginlegt að fagna margbreytileikanum og minna á mikilvægi jafnra mannréttinda fyrir alla. Aðgangur er ókeypis og allir eru velkomnir.
Komum mynd á mannréttindi er sýning á úrslitamyndum í ljósmyndasamkeppni mannréttindaskrifstofu Reykjavíkurborgar. Gestir sýningarinnar fá tækifæri til að kjósa um bestu myndirnar til 10. ágúst kl. 18. Sýningin verður í Ráðhúsi Reykjavíkur til 31. ágúst.
Fram í dagsljósið – fortíð í skjölum sýnir úrval skjala og útgáfuefnis sem tengist sögu samkynhneigðra og annars hinsegin fólks frá fyrri árum, á spjöldum og í sýningarkössum. Sýningin er á vegum Borgarskjalasafns Reykjavíkur og stendur í Ráðhúsi Reykjavíkur til og með 15. ágúst en þá flyst sýningin í húsnæði Borgarskjalasafns Reykjavíkur að Tryggvagötu 15, 3. hæð þar sem hún verður opin út ágústmánuð virka daga kl. 10 til 16.
Hinsegin dagar í myndum Bára Kristinsdóttir og Geir Ragnarsson sýna skyggnur frá Hinsegin dögum í áranna rás. Sýningin verður í Ráðhúsi Reykjavíkur til og með 15. ágúst en þá flyst sýningin í húsnæði Borgarskjalasafns Reykjavíkur að Tryggvagötu 15, 3. hæð þar sem hún verður opin út ágústmánuð virka daga kl. 10 til 16.
Hulstur utan um sál er sýning á myndum og texta úr teikningabók sem útskýrir á einfaldan hátt hvernig börnin verða til. Fjallað er um ástina og hvernig lífið kviknar, ýmist
eftir langa bið eða þegar síst skyldi – og stundum með hjálp læknavísindanna. Höfundur bókarinnar er Hugrún Hrönn Kristjánsdóttir. Hugrún teiknaði jafnframt myndirnar í bókinni ásamt Unni Valdísi Kristjánsdóttur. Sýningin verður í Ráðhúsi Reykjavíkur til 31. ágúst.

Alþingiskosningar 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi