Handritshöfundur Batman leikstýrir Heru

-Leikur í þáttunum Da Vinci's Demons

Hera Hilmarsdóttir fer með hlutverk í sjónvarpsþáttunum Da Vinci's Demons sem sýndir verða næsta vor í Bandaríkjunum, Bretlandi og víðar. Það er David S. Goyer sem skrifar handrit þáttanna og leikstýrir þeim en hann er einn þekktasti handritshöfundur Hollywood um þessar mundir. Goyer skrifaði til að mynda handritið að myndunum Batman Begins, The Dark Knight og The Dark Knight Rises ásamt leikstjóranum Christopher Nolan.

Hera hefur verið búsett í Bretlandi síðustu fjögur ár en frá því að hún útskrifaðist úr London Academy of Music and Dramatic Arts, eða LAMDA, fyrir um ári síðan hefur hún náð eftirtektarverðum árangri í leiklistinni. Hún hefur meðal annars unnið með Keiru Knightley og Jude Law. Hera heldur sér þó á jörðinni þrátt fyrir skjótan frama og ætlar að halda áfram að taka að sér spennandi verkefni sama hvar þau eru.

„Ætli þetta sé ekki stærsta tækifærið hingað til,“ segir Hera um þættina Da Vinci's Demons en landsmenn ættu að kannast við leikkonuna ungu úr myndinni Veðramót, þar sem hún fór með eitt af aðalhlutverkunum, og spennuþáttunum Svörtum Englum. Hera er dóttir Hilmars Oddssonar leikstjóra og Þóreyjar Sigþórsdóttur leikkonu og á því ekki langt að sækja hæfileikana.

„Þættirnir eru samstarfsverkefni BBC og bandarísku sjónvarpsstöðvarinnar Starz,“ bætir Hera við en sjónvarpsrisinn Fox hefur keypt dreifingarréttinn af þáttunum en þeir eru með á sínum snærum þætti eins og American Idol, Bones, Family Guy, Glee, House, The Simpsons og marga fleiri.

Nánar má lesa um frábæran árangur Heru í helgarblaði DV.

Meira »


Gleymt lykilorð?

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.