Bombay Bicycle Club flytur Little Talks

Rafmögnuð remix-útgáfa

Breska sveitin Bombay Bicycle Club hefur gefið út útgáfu sína af laginu Little Talks eftir íslensku sveitina Of Monsters and Men. Lagið hefur notið gífurlegra vinsælda í flutningi íslensku sveitarinnar jafnt innanlands sem erlendis. Útgáfa bresku sveitarinnar er rafmagnaðri.

Hljómsveitin hefur verið tilnefnd til MTV verðlaunanna fyrir myndbandið við Little Talks í flokknum „Besta listræna stjórnun“. Verðlaunin verða veitt í september næstkomandi í Los Angeles. Hér má hlýða á útgáfu Bombay Bicycle Club af laginu:


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.